Eða buxnaskjóni eins og einhver þýðandi á vegum S1 kallar það.
Eða buxnaskjóni eins og einhver þýðandi á vegum S1 kallar það.
Buxnaskjóni er svolítið fyndið orð. Þó er orðið skápahommi gegnsærri þýðing á metrósexúal.
En metrósexúal er nú ekki endilega hommi í skápnum... Getum við ekki bara kallað þessa gaura stelpustráka? Já, eða píkur? Ljómar upp
En metrósexúal er nú ekki endilega hommi í skápnum... Getum við ekki bara kallað þessa gaura stelpustráka? Já, eða píkur? Ljómar upp
Píkur er kannski full gróft. Pissudúkkur er vel við hæfi held ég.
Ég sé nú ekki hvernig kvenmannleiki þessara karlmanna tengist blöðrunni á þeim.
Það tengist þeirri notkun að í grimmum heimi barna eru þeir sem pissa en á sig álitnir vera algerir aumingjar.
Síðan hvenær tengjast kvenleiki og aumingjaskapur?
kvenleiki karla telst vera aumingjaskapur.
Hnykklar vöðvana og þykist vera matsjó
Bítur í tána á Hakuchi
Hvernig flokkaru þá karlmannlegar konur?
Stelpar Hakuchi
Aaaaarrgghhhh!!
Reynir að rífa af sér armani jakkafötin og silkibindið frá Versache.
Skvettir yfir sig edikolíu til að bæla niður Ralf Lauren fnykinn og þurrkar af sér meiköppið í örvæntingu.
Rífur af sér silkiskyrtuna og traðkar á henni. Lítur í spegil.
Hva, hvurslags grimmd...hvernig...Hvað varð um bringuhárin mín!!
Hleypur burt í karlendurhæfingarbúðir. Pumpar járn, svitnar og fer ekki í sturtu, hlustar á þungarokk, ropar og prumpar óhóflega mikið, rakar sig ekki og horfir linnulaust á íþróttaleiki og glórulausar ofbeldismyndir.
Sendir Hakuchi nýja Britney Spears diskinn
Flissar þegar Hakuchi getur ekki annað en fílað hann