Jæja, fyrst að ég er búinn að ná athygli ykkar þá tilkynnist það hér með að mig vantar litaprentara.
Endilega látið mig vita ef þið vitið um svoleiðis apparat til sölu.
Út í búð kannski?
Maður að mínu skapi hann Hlebbi.
Kannast við notaða draslið, en það gagnaðist mér ekki, ljóta helvítisflagðið. Krækti í staðinn í meyju eina hjartahreina og íðilfagra og 20 árum yngri en frenjan. Nú er þetta allt annað líf.
Og kemur hún að sama gagni og litaprentari?
Ég á hérna einn fornmun sem ég gæti svosem látið af hendi.
Ég á einn ónýtan litaprentara sem ég vil fá sem mest fyrir. Hann virkar ekki.
Ég á gamlan prentara, hann heitir Þórður.
Það er líka aldraður prentari í minni fjölskyldu. Annars er hann hættur að prenta, amk í lit.
Þetta grín er ekki ósvipað því sem birtist í Spaugstofunni þar síðustu helgi, ef mig misminnir ekki. Þar var á ferðinni samskonar orðaleikur og kom danskur prentari við sögu.
Við erum nú fyndnari en þeir ekki satt?
Margfalt, enda ven ég komur mínar hingað en ekki fyrir framan skjáinn á laugardagskvöldum.
Góður strákur.