"No comment"
"Hann er maður að meiri"
"Þessi ummæli eru ómálefnaleg"
En hver er munurinn á milli frasa og klisju. Hver þekkir ekki hressa gaurinn í vinnunni sem talar í Frösum úr Spaugstofunni og Hemma Gunn. Þessir frasar eru á borð við:
,, Typical ......."
„Ég er svo mikið svoleiðis“
„Guvöð“
„Jæja Hemmi minn“
Eru þetta frasar, klisjur eða jafnvel bæði?
Klisja er orð eða setning sem fólk ofnotar svo að það þynnist út. Gott dæmi er orðin "ómálefnalegur", "stjórnarskrárbrot" og "drengskapur". "Heiðursmaður" er einnig alger klisja.
Frasi er meira svona persónubundin orðtök eða taktar sem viðkomandi notar út í eitt. Gott dæmi er Guðni Ágústsson með "Íslenska ..., besta ... í heimi" (fyllið í reitina með orðum eins og pulsa, grænmeti, mjólkin brennivín og í rauninni hvað sem er sem er búið til á landi)
Þakkar fyrir fræðsluna sjaldan hefur einhver útskýrt abstrakt hluti á jafn skýran hátt og voff.
Svo er náttúrulega klisjan þegar amman er búin að hlaða upp veisluborði sem hefur sjálfsagt tekið nokkra daga í framvindu:
"Æji þetta er bara smáræði hjá mér"
Svo er það frænda og frænkuklisjan:
"Hvernig gengur í skólanum?"
Svo ein almenn hérna:
"Svo þið segið það"
Kaupstaðarfólk í heimsókn hjá frændfólkinu í sveitinni:
"Nei, nei þið þurfið ekkert að hafa svona mikið fyrir okkur"
Samt sest það niður og gluðar í sig ókjörum af ketilkaffi, kleinum, hnallþórum og rjómapönnukökum
"jæja, ertu í skóla eða vinna"
jafnvél þó maður sé búnað svar manneskjunni þessari spurningu í 3-5 matarboðum á þessu ári
Síðan er annar svona Ömmufrasi. Þegar maður er búinn að troða sig út hjá henni, kemur ekki grammi niður í viðbót þá heyrist gjarnan:
" Er þetta svona vont hjá mér?"
Síðan er annar svona Ömmufrasi. Þegar maður er búinn að troða sig út hjá henni, kemur ekki grammi niður í viðbót þá heyrist gjarnan:
" Er þetta svona vont hjá mér?"
já eða "fáðu þér meira, það er nóg til"
Amma gamla var alltaf að bjóða mér í nefið, klisja kannske...
„Má ekki bjóða þér smá tóbakskorn, væni“
Amma mín sáluga átti reyndar einn snilldarfrasa þegar hún var að gefa manni að borða, en þá sagði hún gjarnan í sínum hrekklausa og sefandi tón: "Þetta er alveg óskemmt..."
Svo er eitt sem amma mín segir og jafnvel fleiri ömmur: "Þetta er svona því amma þín segir að þetta er svona"
"Fáðu þér sæti, þú hefur líklega heyrt af endurskipulaggningunni hér í fyrirtækinu..."
"Þér þykir vænna um Baggalútinn heldur en mig"
"Þú verður bara að velja á milli mín og Baggalútsins"
"Ertu alveg viss um að þú viljir að ég fari?"
og svo skylduklisjan...
""sæll og blessaður..." "hvað ertu að gera núna?" "Jáá og gengur það ekki vel?" "jaaaá, og hvar býrðu núna?" "jájá og hvað er að frétta af pabba þínum og mömmu?"
Einhvern daginn ætla ég að taka svörin við þessum spurningum upp á diktafón og spila svo fyrir fólk þegar klisjan byrjar.
"Heyrðu þú ert nú bara alveg að verða eins og hann pabbi þinn"
Núna ætla ég að tilkynna verstu klisju sem þessir djöfuls frasapólitíkusar og kommatittir hafa fundið upp á og nauðgað fram og aftur, afturábak og áfram.
"málefnalegar umræður"
fær skyndilegt lost við að heyra þetta, gengur berserksgang og stekkur bak við nærliggjandi sófa til þess eins að finna Enter í dauðadái þar bakvið
"Hverra manna ert þú?"
En hvað með eina aðalklisjuna
"Eigum við ekki bara vera vinir"
Annars ef maður horfir á orðið klisja þá virðist þetta ekki vera orð!!!!! syngur "Lóan er kominn"