Tilnefningarnar eru komnar á http://www.tonlist.is/Article.aspx?id=229 Hvernig lýst ykkur svo á?
Hmm.. síðan hvenær varð Quarashi rokkhljómsveit?
ja eða Hjálmar? Ég veit ekki hvar við eigum heima sko...
Til hamingju með tilnefningarnar hjá Hjálmum, bumbubaninn minn.
Ég veit nú ekki einu sinni hver þessi Hjálmar er..
Reggíhljómsveitin Hjálmar, ljómandi fínir... til hamingju trommari...
Jæja, þá eru verðlaunin sýnd í "Sjónvarpi allra landsmanna" í kvöld þegar klukkan er 2 tímum meira en summan af 3 og 3. Allir að horfa!
Já, til hamingju með tilnefninguna. Maður sér þá kannski í kvöld hvernig þú lítur út í daglega lífinu...
Óþolandi Oscarwannabe alltaf hreint. Sjálfhverft pakk að verðlauna sjálft sig. Kemst þó ekki með tærnar þar sem auglýsingamarkaðsskítapakksverðlaunin hafa hælana. Það er sjálfhverfa dauðans.

Hvað er nú þetta, Fíflagangur? Er ekki í lagi þótt tónlistarfólk haldi sína árlegu uppskeruhátíð og verðlauni þá sem þykja hafa skarað fram úr á árinu? Annað eins gerist víst í fleiri starfsgreinum...
Ég heyrði því meira að segja fleygt að gestir á gestasvæði Baggalúts hafi haldið sína eigin verðlaunaafhendingu á síðasta ári.

Því hefði betur verið fleygt í tunnu, ekki vann ég nokkurn skapaðan hlut... ekki svo mikið sem tilnefndur.
-
Þetta var ágætis hátíð. Til hamingju Trommudrusla! Þú ert huggulegri í raunveruleikanum heldur en myndin gefur til kynna...