Jú þetta var ágætis hrekkur, skil nú ekki hvernig þið létuð blekkjast, þetta var alltof dramatískt til að geta staðist. Hafði lúmskt gaman af að fylgjast með þessu meðan á stóð. Það sem kom mér mest á óvart í þessu öllu saman var þáttur Glúms, hann er ekki allur sem hann er séður. Held samt að þetta hafi nú verið svona piss uppí vindinn fyrir ljótukallafélagið og þeir fái alla gusuna yfir sig í formi harðnandi ritskoðunar og friðargæslu. Þannig var þetta strategískt ekkert sérlega góður leikur en þeir eru jú auðvitað bara rétt að byrja, gaman verður að sjá hverju þeir taka uppá næst.
Örstutt yfirlit yfir atburðarásina er efst í nýjasta félagsriti voru ef þér hafið eigi áttað yður á hvað gerðist með lestri á þeim þráðaflækjum er þessu tengjast.
Örstutt yfirlit yfir atburðarásina er efst í nýjasta félagsriti voru ef þér hafið eigi áttað yður á hvað gerðist með lestri á þeim þráðaflækjum er þessu tengjast.
Hjartans þakkir.
Stekkur yfir tengilinn Forðið ykkur! Skiljið mig eftir! Bjargið sjálfum ykkur!
bjakk!!!
ósammála þér Nykur!
Bahamas!
Er þetta ekki farið að verða eins og hvað dettur þér í hug leikurinn?
Þá segi ég túnfífill. Þar sem að Nykur er blómið og Vamban og ívar stöngullinn.
Komið þér endilega hingað aftur Frelli þá erum við komnir með þennan líka jólalega blómapott, gylltann um miðjuna.
Það mætti segja að þráðurinn hafi farið í bóndabeygju um sjálfan sig. Ljótir Kallar þar að verki á ný?
Þetta er núna farið að minna á þáttinn hans Gísla Einarssonar í Borgarnesi, Út og suður...