Allir að missa sig útaf þessu viðtali við Freysa. Hverjar eru ykkar skoðanir? Búið að vera í útvarpinu í tvo daga væl um þetta og svo síðast í kastljósinu í kvöld. klórar sér í höfðinu
Hver er þessi Freysi? Heldur hann með Wham?
Tel hann vera Duran Duran mann, en er þó ekki viss.
Þetta manngrey er óttalega vesælt og furða ég mig á að það sé verið að eyða pappír í svona pappakassa. Ég held að mér hafi hrakað andlega um nokkur ár við að lesa þetta.
Já, þú segir nokkuð Hlégestur! Er ekki Freysi bara holdgervingur póstmódernismans í sinni tærustu mynd. Ég held að minnsta kosti að við séum komin að endimörkum hinnar póstmódernísku krúttkynslóðar sem gerir allt til þess breikka kynslóðabilið eins og hægt er. Yfirvöldum er storkað með hneykslanlegum yfirlýsingum, en þó með krúttlegt bros á vör. Á þessari stundu stendur íslensk unglingamenning við brún hengiflugsins og við getum spurt okkur sjálf hvort þaðan verður nokkurn tíma aftur snúið....
Ég er a.m.k. búinn að vera fullur síðan 1972. Sem er gott.
Lummustuð!
Kallinn sem talaði á móti Freysa, talaði um hvað hipparnir höfðu einhvern málsstað og eitthvað að segja. Okkar kynslóð var alin upp við slagorð hippakynslóðarinnar Lifðu hratt deyðu ungur
á ensku Live fast die young
Reyndar er sannleikurinn live fast and die slow.
Hef hlustað á hann Freysa einstaka sinnum og þá á leið úr vinnunni og finnst mér hann oft vera nokkuð fyndinn í sínu rugli, get samt vel skilið að fólki misbjóði sumt af því sem hann segir, er ekki annars verið að ræða það?
Málfrelsi hefur margar hliðar. Við höfum margt val fjelagar. Ekki gleyma því.
Hvaða úrvals örviti er þessi Freysi?
Hann er þó ekki Framsóknarmaður? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ég samhryggist innilega.
Læðist upp í Valhöll fylgist agnoda með þar sem dúfan á fána Sjálfstæðisflokksins blaktir í vindinum
Heldur hægri höndinni útréttri
Ég hef heyrt að það sé frumvarp á Alþingi um að lóga öllum Framsóknarmönnum sem kunna ekki handritið sem þeim er sent í upphafi hvers þingárs.
Ég er að horfa á Andra AKA „Freysa“ standa fyrir máli sínu gagnvart einhverjum hafnfirskum æskulýðsfulltrúa. Kastljós endursýnt: http://servefir.ruv.is/dagskra/streaming/default.asp?channel=1&date=2004-12-02&file=4154511
Get ekki sagt annað en að það sé hr. æskulýður sem lætur vitleysuna vella upp úr sér meðan að Andri stendur prýðilega fyrir máli sínu.
Viva la Shock Jock!
Hlégestur frá Hriflu já...? klórar sér í höfðinu
Lummustuð!
Ég vil ekki heyra mann sem kallar konur skonsur vera að tala um eitthvað Lummustuð! >:o8
Ég er að horfa á Andra AKA „Freysa“ standa fyrir máli sínu gagnvart einhverjum hafnfirskum æskulýðsfulltrúa. Kastljós endursýnt: http://servefir.ruv.is/dagskra/streaming/default.asp?channel=1&date=2004-12-02&file=4154511
Get ekki sagt annað en að það sé hr. æskulýður sem lætur vitleysuna vella upp úr sér meðan að Andri stendur prýðilega fyrir máli sínu.
Viva la Shock Jock!
Hvaða endemis bull er þetta Muss, hvað ertu gamall? Ég sá kastljósþáttinn og vissi ekki hvort ég ætti að vorkenna strákbjálfanum eða ekki. En aumkunnarverður var hann. Hann játaði ma að hafa gert at í andlega vanheilum manni, en það var allt í lagi af því að viðkomandi hafði hringt í þáttinn til hans. Annars var eins og stráknum hefði aldrei dottið í hug að hann bæri einhverja ábyrgð á þættinum eða karakternum "Freysa".