— GESTAPÓ —
Þjóðmála umræða
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hóras 2/12/04 19:16

Það hefur verið mikið að gera hjá Skabba undanfarið þar sem menn og mýs hafa tekið kast. Skabbi minn þessi þráður mun vonandi ekki valda þér hugarangri, en ég mun ekki bera ábyrgð á því um hvað er rætt á honum.

Eigandi einnar af níu sálum Tigru • Eigandi Armani spennutreyju • Fjölmiðlaráðherra • Heilagur Ári Hreintrúarflokksins • Ekki hamstur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 3/12/04 00:25

Hér er upplagt að taka upp umræðu um það hvað menn vilja í raun og veru ræða hér, ég hef verið hrifnastur af því að ræða þjóðmálin á þessu svæði...
- Íraksstriðið
- forsetakosningar
- kosningaloforð
- ólöglegt samráð
- skattalækkanir
- skattahækkanir (helvískir að ætla að hækka skatt á Ákavíti)
- jarðgöng
- Kárahnjúkar

og annað á þessari línu, þar sem fólk kryfjar málin til mergjar, rökstyðja mál sitt og vanda sig við að koma skoðunum sínum á framfæri, en það er kannske ekki það sem menn vilja á Efst á baugi.
Einnig er ég ánægður með margt annað sem er Efst á baugi í hjarta margra, eins og kjötfarsútsalan, pulsu-umræðan, samsæriskenningar og margt fleira...
Hver er ykkar skoðun?

p.s. svo má halda einstaka fyllerí hér í góðu tómi að mínu mati... hehe

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 3/12/04 00:43

Ég hef nú meiri áhuga á að ræða fyrirhugaðr samþykktir Evrópusambandsins í Schengensamstarfinu um nýjar kvaðir um vegabréfsáritanir.
Er einhver með? ‹Starir þegjandi út í loftið›

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 3/12/04 01:09

Það er nú alveg klárt mál að þessir sí breimandi, svefnraskandi, flóasirkusar eru til eilífra vandræða og ónæðis.

Leggja ofurskatt á kattarhald. Verðlauna frekar fólk sem er með hunda með skatta lækkunum. ‹Ljómar upp›

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rasspabbi 3/12/04 01:12

Bræða þessa ketti í sápu...

Ég segi þetta nú bara af kvikindisskap ekki það að ég meina nokkuð með því.

Rasspabbi - Atvinnulaus fyllibytta - Sæmdur heiðursorðu bagglútíska heimsveldisins af Hakuchi - Bruggari í tómstundum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 3/12/04 09:21

Ég var nú meira að meina, hvað svona almennt menn vildu ræða hér á þessu svæði, þið nefnið góðar hugmyndir, setjið þær fram í formi nýs þráðar og rökstyðjið ykkar mál... er það ekki upplagt?

En að þráðnum aftur, hvernig viljið þið hafa Efst á baugi, hver er línan sem þið viljið fylgja.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Golíat 3/12/04 09:40

Kettir eru undirförul illfygli, sem hvergi eiga að líðast nema til músaveiða þar sem sérstök þörf er á slíku. Hundurinn er aftur á móti besti vinur mannsins, falslaus og tryggur. Hundar eru engin borgardýr og eiga í raun ekkert erindi þangað nema sem blindrahundar eða þefarar í tollgæslunni.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 3/12/04 11:42

Oss finnst eðilegt að hér sé einhver umræða um mál svipuð og nefnd voru af Skabba ofarlega í þræðinum. Þó viljum vér benda á og vara við að líkt og sjá má á öðrum vefsvæðum getur hún auðveldlega farið úr böndunum og þátttakendur orðið afar stórorðir (eitt 'eldfimt' dæmi: Að stuðningsmenn Íraksstríðs séu allir kallaðir blóðþyrstir fjöldamorðingjar og andstæðingar þess síðan á móti kallaðir svipuðum nöfnum).

Hinsvegar finnst oss bráðnauðsynlegt að hér séu líka umræður um fréttir og málefni þau er falsmiðlarnir neita af einhverjum ástæðum að birta fréttir af og halda í staðinn fram þeirri fráleitu staðhæfingu að um sé að ræða grín og vitleysu.

Og úr því að vér höfum tjáð oss hér er rétt að nefna að vér söknum þráða héðan er hurfu er sjálfvirk þráðahreinsun var í gangi. Hér var stórmerkilegur þráður um yfirvofandi heimsendi (ef vér munum rétt var voff búinn að nefna að hann væri horfinn) og svo var frímúrararegluþráðurinn skemmtilegi hér ef vér munum rétt. Í gær ætluðum vér að stofna leynireglu innan frímúrarareglunnar en sáum þá að hún var horfin ‹Dettur skyndilega í hug að þar sé um að ræða lið í allsherjar alheimssamsæri›. Sé hægt að endurheimta þessa þræði (og kanna þannig hvort öryggisafritataka af þessu öllu virki) myndi það gleðja oss.

Og svo er eftirfarandi nauðsynlegt hér:
SKÁL ! ‹Sýpur á drykk sem er enn blárri en venjulega því það er að koma helgi›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
víólskrímsl 3/12/04 12:24

‹sér ljós í myrkrinu›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 3/12/04 15:06

Já Vladimir, nú er ég að koma inn á Baggalút eftir nokkurra klukkustunda hlé og mér sýnist allt vera vitlaust, en ef menn sakna þráðar og lokun Gestapó sé ekki raunveruleg, þá má senda einkaskilaboð á Enter (held ég) um að þræðirnir komi aftur, þeir eiga afrit af þeim...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 3/12/04 17:21

Eigum við ekki bara að núllstilla spjallsvæðið? Byrja upp á nýtt.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 3/12/04 17:23

Það væri nær, finnst ykkur rannsóknarréttur Glúms eiga að standa, það eru frekar leiðinleg orð sem hafa fallið þar... en ég hvað veit ég, ég fæ sjálfsagt skammir ef ég hreyfi við því...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hóras 3/12/04 17:25

Það eru líka margir sem hafa verið fjarverandi og mega við því að sjá þetta og taka þátt í umræðunni. Umræðan er sannarlega þörf, ég viðurkenni það fúslega.

Eigandi einnar af níu sálum Tigru • Eigandi Armani spennutreyju • Fjölmiðlaráðherra • Heilagur Ári Hreintrúarflokksins • Ekki hamstur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 3/12/04 17:27

Ég læt það standa... það er líka gott á þá sem gátu ekki stillt sig um að vera með fúkyrði... þeir eru jafn slæmir og ljótukallarnir sem stóðu að þessu...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 3/12/04 22:16

Skabbi skrumari mælti:

Það væri nær, finnst ykkur rannsóknarréttur Glúms eiga að standa, það eru frekar leiðinleg orð sem hafa fallið þar... en ég hvað veit ég, ég fæ sjálfsagt skammir ef ég hreyfi við því...

Oss fannst meirihluti þeirrar umræðu samt í lagi og í raun ótrúlega góður miðað við aðstæður (leiðinda orð féllu þó hjá einstaka gestum). Þetta var nefnilega þannig mál að ef einhverntíma var hætta á að hér springi allt í loft upp með látum var það líklega þarna - en það var nokkuð langt frá að slíkt gerðist.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 4/12/04 00:43

Ég er samt enn fúll, fyrir hönd feminista, hún átti þetta ekki skilið... að þessir jólasveinar skildu finna löngun til að kenna henni um er ofar mínum skilningi... jæja, það segir kannske sitthvað um hugsunargangin í þeim... en ég er kannske of drukkinn til að tjá mig um slíkt og því á leið í rúmið svona rétt sem snöggvast...

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hildisþorsti 4/12/04 03:57

Mér finnst allt í lagi að loka fyrir einstaka innlegg svo að málefnaleg umræða geti haldið áfram.

LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: