Djöfullinn sjálfur. Ég verð að bíða með að hlusta á lagið þar til ég kem heim því mig vantar allt til þess í vinnunni.
Það var líka á Rás tvö fyrir sirka klukkutíma, ætti að koma aftur bráðlega, það er það mikil snilld...
Snilld en varð þó til þess að sú ætlun vor að komast ei í minnsta vott af jólaskapi fyrr en í desember mistókst. Þar munaði þó einungis nokkrum klukkutímum - slíkt má fyrirgefa.
Ég var með einmana tár í hvarmi lengst af, en fékk óstöðvandi ekka þegar " Eða kamparí í órans? Æ, manstu vikuna okkar í Flórens?"heyrðist. Takmarkalaus fegurð.
Stórfenglegt!
Ég klappa fyrir ykkur elskurnar eins og endranær.
Klappar og klappar
Maður fær þetta á heilann
Syngur
Ég verð að viðurkenna að ég missti smá saur við hlustunina, svo frábært var það.
Suddaflott alveg. því er ekki að neita.
Þetta er frábært lag og textinn enn betri.
Fannst ég reyndar kannast örlítið við lagið en það gerir þetta bara betra.
Hlakka til að hlusta á það einhverntíman í desember
Þetta er aðventulag, í lagi að hlusta á það nú...
Raular með sjálfri sér
Ghetto superstar, that is what you are..... trallala
Gott kveld kæru vinir. Mig langar að kynna....eh....mig.
Ég er trommudruslan sem hefur notið þess heiðurs að fá að berja bumbur fyrir Baggalút í nokkrum lögum gegnum tíðina. Eigi er ég sá eini sem þess heiðurs hefir verið aðnjótandi þó. Mig langar að nota tækifærið til þess að þakka hæstvirtum aðstandendum Baggalúts fyrir að leyfa mér að tjá mína list í þeirra harða starfi að skemmta, kenna og bæta landann. Þakkir fyrir.
Ég vona svo sannarlega að þið, hlustendur góðir hafið haft gott og gaman að laginu og minni þá einnig í leiðinni á að möguleiki er á að detikerað Jólalag lýti dagsins ljós von bráðar. Kærar Jólakveðjur.
Jamm semsagt. Ég er trommudruslan. Já...heh...
Ég gratúlera.
Alveg skrambi gott hjá þér trommudruslan þín. Glottir
Eini gallinn sem ég hef fundið við þetta lag er að það er einfaldlega ekki nægilega langt... þyrfti að vera svona 5 mínútur í viðbót af því...
þakka fyrir að til er repeat!