Mikið er þetta ljúft og yndislegt jólalag um samheldni vísitölufjölskyldunnar. Langt er síðan ómaði síðast jólalag sem strýkur vora mjúku strengi af jafn miklum krafti. Tárast við aðra hlustun á laginu
Afsakið mig... ég þarf smá tíma með sjálfum mér..
Fer í freyðibað, sötrar þar malt og appelsín og naslar laufabrauð.
Mælir hitastigið í baðinu
hmmm... of lágt.
Skrúfar frá heitavatninu
Hvaða heilhveitis lag??
Svei mér þá.
Eruð þið alveg hætt að líta við á forsíðu Baggalúts, sjálfhverfu gemlingarnir ykkar?
http://www.baggalutur.is/jol/2004.php
Tvímælalaust best lag Baggalúts til þessa. Kemur út tárum hjá kaldlyndasta fólki snöktir 'Jahá, mest er þó gaman - haha / að við skulum vera saman - haha' - þetta mun ég raula með ástvini mínum út alla aðventuna.
Hvern hefði grunað að Númi og Spesi gætu sungið?
Leggur saman tvo og tvo Það skildi þó ekki vera... Herra Ztarblaster er Númi! Eða... er Númi Ztarblaster? Starir þegjandi út í loftið
ertu góður í, nettan búlemí
ælum öllu því, sem við bitum í
dauf skilaboð eru mér að skapiLjómar upp
Nú, fyrirgefðu, þið hafið þá bara svona áferðarlíkar raddir... Ljómar upp
Var að hlusta á þessa snilld. Mikið fjári flott finnst mjer bara. Og ánægjulegt að haldið er í þessa að verða ágætu jólahefð. Þið klikkið ekki strákar. FRÁBÆRT!!!
Hér hefur svo sannarlega tekist vel til. Skemmtilegt hvernig hlý aðventustemmning er sköpuð án þess að nuddast utan í jólalög í nóvember. Hér er líka byggt á veruleika sem allir núlifandi Íslendingar þekkja. Sérlega geðþekkt lag. Hafið bestu þakkir.
Já, ég lýsi yfir velþóknun minni á þessu lagi. En jafnframt harma ég fremur niðrandi ummæli Núma Fannsker um þá heiðursbræður Gibb. Það fer sérstaklega illa á því nú þegar stórt skarð er fyrir skildi.
Þetta er dásamlegt, mömmukökurnar, sörurnar og laufabrauðið fékkk mig til að slefa yfir lyklaborðið. Kunniði góða aðferð til að þrífa það?
Kominn með lagið á heilann...
♪♪Réttu rauðkálið, grænu baunirnar...♪♪
♪♪Viltu kartöflur, sykurbrúnaðar...♪♪