Ég heiti á ykkur krakkar, að borða nóg af pulsum, svo þið verðið stór og sterk. Það er ekki til betri skyndibiti úr svona góðu hráefni.
Eigi höfum vér hug á að gera samskonar könnun á gæðum heilbrigðiskerfisins og landbúnaðarráðherra gerði á dögunum og munum vér því láta pulsuát að mestu eiga sig á næstunni.
Í guðanna bænum breyttu nafninu!!!!
Þetta heita PYLSUR!!!!!!!!!!!!
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Sem friðargæsluliði hérna, mun það ekki takast hjá honum að breyta nafninu yfir í pylsur (ekki að ég haldi að hann muni reyna það)...ég mun breyta því jafnóðum yfir í rétt, þ.e. pulsur...
Rétt er að geta þess að vér töluðum um pulsuát því heiti þráðarins innihélt þá mynd orðsins pulsa/pylsa. Vildum vér að alveg ljóst væri að vér værum að tala um sama fyrirbæri og heiti þráðarins felur í sér.
Skabbi... og þú sem býrð fyrir norðan... að þú látir þetta viðgangast
Brestur í óstöðvandi grát
Bý, rétt... hehe... pulsa með öllu og þá er manni hent út úr sjoppunum, en ég læt það ekki á mig fá...
Grísafita í gerfiþarmi með öllu er góður skyndibiti.
Helvítis Sunnlendingar...
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það er ekki einu sinni hægt að fá djúpsteikta pylsu með frönskum og kokteilsósu sunnan Holtavörðuheiðar!
Brestur aftur í óstöðvandi grát
Ég læt mér einungis nægja að benda á að hér er um tilvitnun að ræða, og umræddur maður notaði skýrt og greinilega orðskrípið 'pulsur'. Sjálfur myndi ég aldrei láta slíkt úr mínum munni fara sjálfviljugur.
Helvítis Sunnlendingar...
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það er ekki einu sinni hægt að fá djúpsteikta pylsu með frönskum og kokteilsósu sunnan Holtavörðuheiðar!
Brestur aftur í óstöðvandi grát
Það fæst ekki einusinni rauðkál á þetta dót hér fyrir sunnan.
Helvítis Sunnlendingar...
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Það er ekki einu sinni hægt að fá djúpsteikta pylsu með frönskum og kokteilsósu sunnan Holtavörðuheiðar!
Brestur aftur í óstöðvandi grát
Síðasta manneskja sem bað um slíkt á Bæjarins bestu var hnýtt aftan í strætisvagn númer 140 og látin dragast eftir honum þar til hann kláraði vaktina. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Pulsumenning Norðlendinga er vissulega skemmtileg.... þó ég kalli mig nú ekki heldur Sunnlending...
Það gæti hafa verið ég.... man óljóst eftir þessu atviki....
Held að ég hafi beðið um þetta á BSÍ fyrir nokkrum árum síðan og það endaði allavegana í hörku rifrildi!
Eitt er víst að pulsa með öllu hefur mismunandi merkingu eftir því hvar maður er staddur...
Eitt er víst að pulsa með öllu hefur mismunandi merkingu eftir því hvar maður er staddur...
Nei, pulsa með öllu merkir bara að viðkomandi sé sunnlenskur/reykvískur bjáni.
Nei vá, bara allar uppáhalds pulsurnar mínar mættar! Er partí? - Hí, hí...