Kíkti við í bókabúð í dag og rakst þar á bókmenntaverkið "Sannleikurinn um Ísland" og stuttu eftir að ég fór að glugga í bókina tók sig upp gamalt skítaglott sem fljótlega myndaðist í skært bros sem brátt breyttist í kæfandi fliss sem að lokum braust út óstöðvandi og djöfullegu hláturskasti og barasta varð að leggja skræðuna frá mér til þess að gerast ekki sekur um brot á lögreglusamþykkt sem varðar ósæmilegan hlátur á almannafæri.
Ég held að "Sannleikurinn um Ísland" sé barasta fyrsta bókin sem fær fólk til þess að deyja úr hlátri. Í orðsins fyllstu merkingu. Ég meina það...
Já, þetta verður skyldulesning hjá oss um þessi jól en það er reyndar óvenju mikið um slíkt hjá oss í þetta sinn. Þetta er nefnilega eigi eina bókin er það á við um.
En að sjálfsögðu hefur hún forgang, ekki satt, Vlad?
Jú, enda vér minna kunnugir efni Sannleikans um Ísland (þó vér þekkjum trúlega efnistökin).
Hummhummhumm, maður ætti kanski að útbúa einhvurskonar jólagjafaóskalista. Sannleikurinn um Ísland þar efst á blaði.
Ég minni á að efnistökin eru allt öðruvísi heldur en hér inni á síðunni. Uppsetning bókarinnar minnir mann einhvernveginn á einhverja eldgamla námsbók sem maður hefur fundið upp á háalofti.
Ég ætla að heimta hana í jólagjöf... eða ætti maður kannske að kaupa hana sem gjöf til allra sem maður vill kæta og kaupa hana síðan sjálfur eftir áramót ef maður fær hana ekki í gjöf... hvað kostar gripurinn, ætli það sé hægt að fá Gestapó-afslátt?
hvað kostar gripurinn, ætli það sé hægt að fá Gestapó-afslátt?
Prófaðu að arka inn í Eymundson og heimta Gestapóafslátt...
Einnig gætuð þér sýnt ógnandi tilburði og sagst vera stórlax frá Gestapó.
Í bókatíðindabæklingnum er bókin á tæpar 5000 kr.
Í bókatíðindabæklingnum er bókin á tæpar 5000 kr.
Hvað er það mikið í baggalútsmynt? klórar sér í höfðinu
Ljómar upp Til viðbótar því að vera með tvo baggalútíska gjaldmiðla er eigi tengjast línulega væri bráðsnjallt að hafa margfalda gengisskráningu, þ.e. mismunandi eftir vörutegundum. Þá væri hægt að stórhækka það gengi er tengist fagurbókmenntum meðan Bagglýtingar tæma allar bókaverslanir.
Ekki svo galið. Reyndar skildi ég þig ekki til fulls en hugmyndin hlýtur að hafa verið góð engu að síður.
Starir þegjandi út í loftið
Það er forgangsmál að fá bókina í verslanir og kaffihús hér á lútnum þannig að hægt verði að greiða fyrir hana með böggum, blíðu eða öðrum viðurkendum gjaldmiðli hér á Baggalút, jafnvel láta skrifa hana hjá keisaranum.
hey, já... ég ætla að fá 15 eintök... skrifa það hjá keisaranum takk...
Hlakkar til að sjá loksins bókina. Hoppar um.
Hoppar um með Mosu af einskærri gleði og spenningi
Mér finnst að allir nýjir notendur á Baggalúti eigi að fá frítt eintak af bókinni - sem svona "inngöngutilboð".
Glottir og reynir að nota sannfæringarkraftinn