Gnauðar vindur, grána hár
gamlast blómarósin
Heldur líður henni skár
hrós er besta rósin
Gnauðar vindur, gránar hár
gamlast blómarósin.
Þó undir slæðu'sé slykjugrár
slokkna eigi ljósin
slappur botn hjá mér...
Gnauðar vindur, gránar hár
gamlast blómarósin.
Um þú bindur eigin sár,
ærufróma drósin.
Gnauðar vindur gránar hár,
gamlast blómarósin.
Ég er bæði fölur og fár,
farin burtu drósin.
Gnauðar vindur, gránar hár
gamlast blómarósin.
Þónokkur burt þurrkast ár
þegar slokkna ljósin.
Gnauðar vindur, gránar hár,
gamlast blómarósin.
Gliðna opin gömul sár,
geymdu bestu hrósin.
Eitthvað finnst mér rangt en ég kem ekki fingrinum á það.
Kveðið til Kynjólfs og annara vísnagátumeistara:
Reyni enn að ráða þraut
rétta svarið finna.
Reyni enn að ráða þraut
rétta svarið finna
snúin orð í einum graut
oftast tekst að vinna
Reyni enn að ráða þraut
rétta svarið finna.
Oft þér fellur allt í skaut
ef þú kannt að spinna.
Reyni enn að ráð þraut
rétta svarið finna
Gullinn hring í gleymdri laut,
glettinn skal á minna.
Reyni enn að ráða þraut
rétta svarið finna
Komin er á beina braut
brátt mun konung ginna
Gríðarlega upp með sér yfir titlinum og áskoruninni frá Júlíu. Gerir sig til fyrir henni
Reyni enn að ráða þraut
rétta svarið finna.
Held ég þurfi (heilann braut)
u-hu og soldinn tvinna.
verður alveg hroðalega afbrýðisamur og urrar á Kerjólf
Reyni enn að ráða þraut
rétta svarið finna
Flagði rótar nærsýnt naut
naumt er ráð ósvinna
Svo má líka fikta aðeins við orðin og röðun þeirra
Reyndi enn að ráða þraut
rétta finna svarið
Blindni í um hnossið hnaut
hné mitt illa marið
Ég er ekki alveg viss um að ég fylgi bragarreglunum út í ystu æsar hér:
Upp til fjalla fer nú brátt,
fjúkið þó mig blindi.
Upp til fjalla fer nú brátt,
fjúkið þó mig blindi.
Þar við kalla kela dátt,
kát'úr snjó, í vindi.