— GESTAPÓ —
Messa
» Gestapó   » Efst á baugi
     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9  
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
EyjaSkjeggur 6/11/04 22:39

Ég held að það sé kominn tími til þess að halda messu hérna í Baggalútíu.
Sérstaklega þar sem stökkbreyttur Tony Clifton hefur gert sig heimkominn í Baggalútíu. Það er mikil þörf fyrir messu á þessum tímum þar sem við finnum fyrir álaginu. Frelli getur einnig predikað.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Goggurinn 6/11/04 22:41

Þarf ekki að fórna eitthverju? ‹Starir þegjandi út í loftið› Ahh, jeg veit! Fórnum kanínum!

Goggurinn. Vandamálaráðherra Heimsveldisins og varaforsetaherra. Sendiherra Páskaeyju. Staðfestur og rykfallinn erkilaumupúki. Stoltur eigandi eigin sálar.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 6/11/04 23:11

Nei takk. Ég er samt örlítið hneyxlaður á því að þú skulir ei nefna afhausanir á Ameríkönum.

GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
EyjaSkjeggur 6/11/04 23:50

Amen

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tinni 7/11/04 02:49

‹Hneykslast mikið og setur hlewagastiR á óvinsælda- og dauðalistann›

Einungis andlaus fífl hafa stríðsfórnir í flimtingum. Ég ætla vona að þú farir héðan og látir aldrei sjá þig aftur!

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 7/11/04 03:00

já... en hlégesturinn er formaður ljótukallasambandsins... ég legg til að biskupinn sjái alfarið um messurnar.

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 7/11/04 04:40

Mig langar til þes að vekja sérstaka athygli á því að á morgun (í dag kynni einhver að segja) er „Allra heilagra messa“.
Ég veit reyndar ekki hvern andskotann það þýðir, en sjálfsagt kemur það afhausun trúleysingja ekkert við (kristnir menn hafa stundað það frá örófi alda að afhausa „trúleysingja“, svo við ættum ekkert að vera að kippa okkur of mikið upp við það að þetta sé gert undir formerkjum annarra trúarbragða líka!).

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 7/11/04 12:06

Skammkell mælti:

svo við ættum ekkert að vera að kippa okkur of mikið upp við það að þetta sé gert undir formerkjum annarra trúarbragða líka!

Já og ef einhver nákominn þér lendir í nauðgun eða alvarlegri líkamsárás af einhverri tegund þá skaltu ekkert kippa þér upp við það því að það hefur einhver annar einhverntíman áður lent í því.
HVERS KONAR RÖK ERU ÞETTA EIGINLEGA !

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 7/11/04 12:40

Limbri mælti:

Smá misskilningur hjá þér. Ef þú ætlaðir að búa til samlíkingu hefði hún átt að vera:
Já og ef einhver nákominn þér lendir í nauðgun eða alvarlegri líkamsárás af einhverri tegund þá skaltu ekkert kippa þér upp við það því þú hefur gert viðkomandi glæpamanni það líka og í miklu stærra mæli!

En ef við ætlum allt í einu að fara að taka okkur of alvarlega skal ég útskýra þetta í sögulegu samhengi.

Í því sem ég skrifaði felst (reyndar var þetta sett fram í hálfkæringi, en stenst engu að síður) að það er ansi einkennilegt að rjúka upp til handa og fóta yfir því að þér (lesist: kristnum vesturlöndum) sé gert það sem þú hefur gert öðrum í hart nær tvö þúsund ár. Og n.b., þú gerir enn árið 2004 þegar við þykjumst vera orðin talsvert vel upplýst um mannkynið allt.
Rasismi er úrelt hugtak, allir menn eru bræður............ reyndar ekki þeir sem eru öðruvísi en við í útliti og hugsun. Þeir eru annars flokks. Hvað heldur þú að „við“ drepum marga annars flokks menn á degi hverjum?

Veltu þessu örlítið fyrir þér kæri Limbri. Og þegar þú skellir fram samlíkingum er æskilegt að þær snúi ekki við upphaflegri merkingu.
Ja, nema þú sért stjórnmálamaður.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 7/11/04 13:22

Ert þú að segja að stúlkan sem varð fyrir nauðgun í síðustu viku hér í bænum sem ég bý í, hafi SJÁLF GERT VIÐKOMANDI NAUÐGARA ÞAÐ LÍKA OG Í MIKLU STÆRRA MÆLI

Skammkell mælti:

En ef við ætlum allt í einu að fara að taka okkur of alvarlega skal ég útskýra þetta í sögulegu samhengi.

Í því sem ég skrifaði felst (reyndar var þetta sett fram í hálfkæringi, en stenst engu að síður) að það er ansi einkennilegt að rjúka upp til handa og fóta yfir því að þér (lesist: kristnum vesturlöndum) sé gert það sem þú hefur gert öðrum í hart nær tvö þúsund ár. Og n.b., þú gerir enn árið 2004 þegar við þykjumst vera orðin talsvert vel upplýst um mannkynið allt.
Rasismi er úrelt hugtak, allir menn eru bræður............ reyndar ekki þeir sem eru öðruvísi en við í útliti og hugsun. Þeir eru annars flokks. Hvað heldur þú að „við“ drepum marga annars flokks menn á degi hverjum?

Veltu þessu örlítið fyrir þér kæri Limbri. Og þegar þú skellir fram samlíkingum er æskilegt að þær snúi ekki við upphaflegri merkingu.
Ja, nema þú sért stjórnmálamaður.

Ég hef velt þessu mikið fyrir mér. Ég hef komist að því að þú ert haldinn einhverri undanlegri fjarlægðarskynvillu. Telur að morð á einstakling, framið af öðrum einstakling, réttlætist út frá því að á einhverjum öðrum tíma og öðrum stað, framdi einhver annar maður morð á einhverjum enn öðrum manni.

Samlíkingin felst í því að þú átt ekki að líta svo á að þessir menn sem er verið að afhausa séu einhverjir hlutir sem mega alveg missa sín því að fólk hér áður fyrr drap hvort annað. Þú átt að líta svo á að þetta fólk sem er verið að drepa gæti allt eins verið ættingjar þínir. Þú átt að líta svo á að þegar saklaust fólk verður fyrir árásum án þess að það sjálft, persónulega, hafi gert nokkurn skapaðan hlut af sér annað en að lifa í því samfélagi sem það fæddist í.

Að ætla að segja að vegna þess að trúarbrögð hafi verið uppspretta haturs á öldum áður, sé réttlætanlegt að menn séu aflífaðir í dag, er eins hálfvitalegt og að segja að menn megi labba um hverfið og nauðga af því að það var gert áður.

Ég neita því að samlíkingin hafi snúið nokkru við, aftur á móti var snúið úr samlíkingunni.

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 7/11/04 13:26

Einhvern tíma sá ég í sjónvarpi viðtöl við fólk í bandaríkjunum, þar sem það lýsti viðbjóði sínum á opinberum aftökum í Saudi Arabíu. Þar væri þetta ein helsta fjölskylduskemmtun um helgar. Það komast færri að en vilja þegar menn eru grillaðir í rafmagnsstóli Texasmorðingjans. Þess hefur líka verið krafist af fólki þar að skemmtiefninu verði sjónvarpað. Ég hef grun um að slík sjónvarpsskemmtun fengi nokkuð gott áhorf.
Sé ekki muninn á þessu en hræsnin er augljós.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 7/11/04 13:30

Þú sérð ekki muninn og ég sé ekki samhengið. Svona er fólk misjafnt.

-

Þorpsbúi -
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 7/11/04 13:41

Var ekki verið að tala um afhausanir ólíkra trúarbragða? Fólk er nefnilega ekki svo misjafnt.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 7/11/04 13:54

Sko nú eruð þið að tala! Mér lýst vel á fórnir.. ég skal sjá um afhausunina.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 7/11/04 14:08

Hvernig ættli það sje að afhausa einhvern og drulla í sárið?
‹Og þar með er jeg kominn í ónáð HAHAHAHAHAHAHAHAHA... Labbar út!!!›

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 7/11/04 16:50

Limbri mælti:

-

„Sérfræðingurinn“ hefur talað. Og sent okkur hina út í ystu myrkur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 7/11/04 17:02

Limbri mælti:

[Ert þú að segja að stúlkan sem varð fyrir nauðgun í síðustu viku hér í bænum sem ég bý í, hafi SJÁLF GERT VIÐKOMANDI NAUÐGARA ÞAÐ LÍKA OG Í MIKLU STÆRRA MÆLI

Samlíkingin felst í því að þú átt ekki að líta svo á að þessir menn sem er verið að afhausa séu einhverjir hlutir sem mega alveg missa sín því að fólk hér áður fyrr drap hvort annað.
-

Elsku kallinn minn. Hér var rætt um trúarbrögð í stóra samhenginu (veistu hvað það er?), en ekki einstaka þorpsglæpi.

Veistu nokkuð að það hafa yfir 100.000 Írakar merið myrtir frá því innrásin þangað hófst? Það er ekki hér áður fyrr, heldur núna. Er fólk í þínum huga einungis vesturlandabúar?

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 7/11/04 17:45

Skammkell mælti:

Elsku kallinn minn. Hér var rætt um trúarbrögð í stóra samhenginu (veistu hvað það er?), en ekki einstaka þorpsglæpi.

Morð er morð sama hvort það er gert vegna þess að þér líkar illa við hús nágrannans eða vegna þess að hann trúir á annan guð en þú. Og með því að segja að þessi morð séu réttmæt virðist þú í raun vera að segja að þú sjálfur sért réttdræpur. Er það það sem þú (einstaklingur í hinum vestræna heimi) ert að reyna að segja ?

Skammkell mælti:

Veistu nokkuð að það hafa yfir 100.000 Írakar merið myrtir frá því innrásin þangað hófst? Það er ekki hér áður fyrr, heldur núna. Er fólk í þínum huga einungis vesturlandabúar?

Gerði ég nokkurn tíman lítið úr morðinu á þeim? Ég man ekki eftir því að ég hafi nokkurn tíman haft morð í flimtingum, þeir einu sem hafa reynt að tala léttvægt um slík illvirki hafa yfirleitt fengið harðorð svör frá mér. Og þeir sömu hafa þá yfirleitt verið að reyna að gera lítið úr einu morði vegna þess að eitthvað annað morð hefur átt sér stað. Þannig tala ég ekki né hugsa. Ekki bera upp á mig að gera lítið úr villimannaskap eins hóps þegar ég er einfaldlega að biðja menn um að vera ekki að upphefja villimannaskap annars hóps.

-

Þorpsbúi -
LOKAÐ
     1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9  
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: