Jæja, þá er loksins komið að því. Fyrsti Teaser trailerinn kominn út fyrir Stjörnustríðs mynd númer þrjú.
Í gegnum árin hefur maður lifað í afneitun, og sagt við sjálfan sig: "Jar Jar Binks er nauðsynlegur þáttur í þróun Anakin Skywalker í Darth Vader".
Þeir sem hafa áhuga á að kíkja á herlegheitin geta séð þau á Hugi.is:
http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_type=trailers&page=view&id=603
Núna bíður maður bara og vonar að George Lucas hafi fengið einhvern til að skrifa fyrir sig dialogue handritið.
Mér finnst nautakjöt gott.
Viet ekki hvernig fólk tekur í það að tengill frá h***.** sjáist hérna
Ekkert svo svakalega vel held jeg.
Þrátt fyrir varhugarverðan tengil, þá gat ég ekki hamið stjörnustríðsnördið í mér og kíkti á sýnishornið. Þetta lítur ágætlega út. Þó tók ég eftir að ekki var sagt eitt aukatekið orð úr myndinni. Það gæti verið ágætis framþróun hjá Lucas. Miðað við skelfileg samtöl í síðustu tveimur myndum þá væri gott að hafa þessa bara tallausa.
Mér iljaði um hjartarætur að heyra Sir Alec Guinness bera fram orðið Evil. Flottara verður að ekki.
Ég biðst fyrirgefningar á að hafa sett inn tengil á H***.is á síðuna. Innan skamms mun téður trailer vera settur í almennar sýningar á Apple.com, og þá verður þessarri slóð breytt hið snarasta.
Apple? Þýðir það ekki að sýnishornið verður sett upp í einhverju óáhorfanlegu .mov eða Quicktime umhverfi sem enginn nema Makkanotendur geta séð?
Ég sá nú ekki betur en að þessi tengill sem er uppgefinn vísi á quicktime skjal. En kannski misskildi ég eitthvað þegar tölvan vældi í mér um að uppfæra quicktime MIME eitthvað eitthvað hjá mér.
-
Nú jæja. Eins lengi og hægt að horfa á þetta í alvöru pc tölvu, þá er ég sáttur.
Ég hugsa að ég eyðileggi ekki upplifunina með að skoða þetta neitt frekar, maður verður búinn að fá leið á þessum treilerum hvort eð er þegar myndin birtist loks...
Á ég að færa þetta yfir á dægurmálasvæðið eða er þetta efst á baugi...
Ætli sé ekki best að færa þetta yfir á Dægurmálasviðið.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Þessi myndbútur var einmitt það sem ég þurfti...
Hahhahahahahahaha! laumupúkast Það hefur gelymst að loka þessum þræði! Hohooho! lætur öllum illum látum
Ahah! Ekki nóg með þetta, heldur er þetta líka ormagöng. Ég er hér á Efst á baugi en þráðurinn vísar til Dægurmál, lágmenning og listir. laumupúkast extra mikið
Hættu þessu!
Nei!
Hættir ekki.
♪Laumi laum♪
Laumast út, sveiflandi ímynduðu geislasverði
Laumast afar laumupúkalega á eftir Günther