Skutulsfjarðar skelfd er þjóð
skenkir á sig ketti.
Beitt er svo á hundrað bjóð;
Brandi, Mjása og Gretti.
Ps. Ef þið finnið betri seinni- eða fyrripart megið þið setja hann inn.
Kannske er þetta betra svona..?
Skutulsfjarðar skelfd er þjóð
skenkir á sig ketti.
líkin tökum beitum bjóð;
með Brandi, Mjás´og Gretti
Hafið þið lesið blað Moggans Úr verinu í dag, 11. sept.? Þar er á fyrstu síðu frétt um að á Ítalíu séu menn sem raunverulega beita kettlingum fyrir fisk. Þannig að það eru fleiri en portúgalskir og pólskir farandverkamenn í Kárahnjúkum sem fá að kenna á mannvonsku þessarar þjóðar. Mig er svei mér þá farið a gruna að tónlist Eros Ramazotti er engin tilviljun, heldur samsæri.