Hverjir hérna hafa lesið Potterinn?
Ég hef lesið þær allar og á myndirnar líka á DVD - eðal lágmenning
Hver haldið þið annars að sé "The halfblood prince"?
Frelsishetjan ? (Langaði fá að segja þetta áður en hann kæmi og POTTÞÉTT léti þetta út úr sér)
-
hehe, frelli gæti verið the blackblood menace
en það er víst búið að upplýsa að það sé hvorki Harry né Voldemort.
Ég held að það sé Hagrid...
Ég las fyrstu bókina á íslensku hún var fín en ég er ekki kominn lengra.
Ég er Potteroholic og ég tel að The Half-blood Prince sé karakter sem við höfum ekki enn verið kynnt fyrir. Ég er langspenntust fyrir sannleikanum um Snape og hvað hann er að bauka. Jafnframt hlakka ég líka til að sjá hvað verður um Draco Malfoy úr því að pabbi er kominn í djeilið. Ætli hann fari ekki bara á upptökuheimili? Og hver á að erfa Grimmauld Place? Harry eða Narcissa Malfoy? Fovitin, forvitin.
Ekki Narcissa... Sirius hlýtur að hafa gert ráðstafanir um leið og hann varð forráðamaður Harrýs.
Ég hef séð sjónvarpsauglýsingarnar
Halfblood Prince gæti verið Neville. Það er eitthvað skrýtið þetta með að spádómurinn geti bæði átt við Harry og Neville. Hafið þið annars farið í "ratleik" á http://www.jkrowling.com ?
Mér finnst svo augljóst að það sé Hagrid... Hann er hálfur galdramaður og hálfur risi og við vitum mest lítið um mömmu hans, en svo getur auðvitað verið að risarnir séu anarkistar og eigi sér ekkert kóngafólkStarir þegjandi út í loftið
Vér gætum sagt það án þess að gá í bókina, en eruð þér vissir um, að þér viljið, að vér tjáum yður það?
Vísbending: Skoffínið hlutaði niður sameinan sannleik, er eigi þyrfti sundur að hluta. Hún minntist bæði á Blendingsprinsinn sjálfan, og það, er hann kallast.
Augnalok! Er Wayne Gretzky að lýsa því yfir að hafa ekki lesið allar Harry Potter bækurnar og samt er hann að stjórna Harry Potter þemaleik í mafíu? Skil ég þetta rétt?
Bókunum var endanlega slátrað í sjöunda bindi að mínum dómi. Eftirmálinn sló þó út allan þann væmnisviðbjóð sem ég hef nokkru sinni á minni hunds- og kattartíð komist í kynni við.
Vér skildum eftirmálann þannig, að Jóhanna væri orðin dauðleið á þessum bókum, og vildi leggja þær endanlega til hliðar.