Það hlaut að koma að því. Samninganefndir kennara og sveitafélaga hafa ákveðið að fresta verkfallinu. Skólinn byrjar aftur á mánudaginn.
Má skilja þetta innlegg sem svo að eina samninga málið sem þessar vösku nefndir hafi fundað um hafi verið hvort fresta ætti verkfallinu eða ekki?
Mikið er ég viss um að það eru margir krakkar sem blóta því herfilega að þurfa að mæta í skólann aftur.
Blótar herfilega og rífur hár sitt
Haha, gott á þig.
Ég hugsa nú að það sé leiðigjarnt til lengdar að hanga heima og gera ekki rassgat.
Ef þetta verkfall hefði verið mikið lengur værum við farin að sjá skæruhernað hjá grunnskólabörnum, krakkar sem hefðu ekkert að gera færu kannski að nota litlu heilana sína í að búa til gjöreyðingarvopn eða annað álíka... já ég held að þetta sé bara ágætt að þau fari aftur í skólann.
Vonandi mun þá leiðindafólki fækka hérna.
Já vonandi.... sér alla horfa á sig
Hvað!?'
Vonandi mun þá leiðindafólki fækka hérna.
Ekki tala svona um börnin okkar!
Já auðvitað. Ég réðst heiftarlega á vondan kveðskap hér um daginn. Það hefur auðvitað verið verkfallsbarn að yrkja. Ási minn, ef þú ert barn... fyrirgefðu mér, ég er bara gömul fyllibytta.
Vonandi mun þá leiðindafólki fækka hérna.
Ekki tala svona um börnin okkar!
Ha! Svo framarlega sem þið nennið ekki að ala upp börnin ykkar mun ég neyðast til að segja sannleikan um börnin ykkar.
Haha, gott á þig.
Reyndar er ég nú ekki í grunnskóla, ansi mörg ár frá því að ég sleit síðast sætisáklæðunum þar.
Svar þitt fyrir ofan bauð upp á "Blótar herfilega og rífur hár sitt"
Varð að grípa gæsina meðan færi gafst.
Hvaðan kemur það máltæki annars??
Var það áður en Íslendingar eignuðust frethólka og þurftu að handsama gæsirnar með berum lúkunum og murka úr þeim lífið með krumlunum?? Starir þegjandi út í loftið
Hlýtur að vera.
Gæs er nú stundum notað í yfirfærðri merkingu um kvenmann!!!
Annars er hér skýring fyrir Rasspabba:
Orðatiltækið á uppruna sinn að rekja til fleygra ummæla Ögmundar biskups Pálssonar. Vorið 1508 var hart en á páskadegi kom fugl í látrið en Ögmundur vildi ekki láta slá fuglinn á slíkum degi. Þá bar svo við að kýr sem hafði slitið sig lausa æddi út á tún og felldi fuglanet yfir 300 gæsir og þá viðhafði Ögumundur ummælin: Þá skal grípa gæs er gefst, sem síðan eru höfð að orðatiltæki (Sag Ísl. IV)
Vitneskjan er fengin úr Merg málsins e. Jón G. Friðjónsson.
Vonandi mun þá leiðindafólki fækka hérna.
Þér losnið a.m.k. eigi við oss
Börnin, börnin og enn og aftur blessuð börnin !!!!!!!!!!! Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hvað með okkur foreldrana segi nú bara ekki meir,,,, og þó.
klórar sér í höfðinuVið foreldrar þessa lands búnir með harðfygni og hjálp Actavis og fleiri.
að komast gegnum sumarið með krakka ormana hangandi yfir okkur.
Svo er þessu auka fríi skellt á okkur.. því likur friður og ró sem á eftir að ríkja á heimilum þessa guðvolaða lands (eftir kl 8 á morgun)
Legg ég her með til að Ási verði sæmdur álkuorðunni eða álíka fyrir að hafa sinnt sínu opinbera starfi.
Með vegsemd og virðingu
Dr. M. Ukrebeksy
The Rumenian rocked fuel istitute
Vonandi mun þá leiðindafólki fækka hérna.
Þér losnið a.m.k. eigi við oss
Þú ert ágætur inn við beinið.