Hefill, jólasveinn, heftari, kú.
Helsinki, London, Róm.
Áfengi, togari, Alfreð og frú.
Afi í bleikum skóm.
Bagaleg er þessi brók,
Bragi heldur á hrók.
Ekkert á ég nú kók;
engillinn allt það tók.
Skaðbrunnið skyldmenni
skósverta á dverg
Afdankað illmenni
ilmur af merg
Hlussa, skinka, Hannes, mör
hefill,tólg og nunna
Sullur, nári, spekk og ör
sleði, bumba, nunna
Tormelltann jafning úr tofu át
tafsaði, Smjattpattinn glaður
Bremsaði ræfill í buxurnar mát
bömmer að skít'á sig maður
Snjómaður, heyrnartól, snigill, lak.
Snemmhendis, endranær, hví?
Vinstri hönd, hundaól, vélinda, blak.
Vörubíll, skurðgrafa, slý.
Botnreka, Nárblámi, brisleki, slys
bólfarir, hryðjuverk, loka
Skyrhræra, hornklofi, sinnepsgas, blys
Sólheimar, álka í poka
Miðlunartillaga, marbendill, flór
móðulífsbólga, hlandgulur snjór
Sjálfstæðismaður, svefnvana, sljór
sífilis, brúnkitis, ræpa og bjór
Nöldursöm næfurþunn skræpa
njálgurinn skömminni skár
Sjórekið sjáldur sú ræpa
sjúgandi níðþungur nár
Þakið sat þórði brá
þorlákshöfn hér ertu
má sjá meiri krá?
blessaður sértu.
Áfram spinn ég þennan þráð af þegnskap mínum
bara svo að skært vér skínum
skapandi í sem flestum línum.
(Náði þeim merka áfanga að eiga 9 "síðustu" andvörp á forsíðu Kveðist á. Og þetta það 10.)
Skagamenn, nefúði, skrámur og regn.
Skarnhaugur, fjarstýring, þró.
Ekki enn, bévítans, öllum um megn.
Yfirlið, hjartastopp, dó.
horaður kálfur sem kom hér í gær
og klárinn sem grét af sér fætur
giftust hjá sýsla (sem þrotabú þvær)
og þukluðu langt fram á nætur
Jesúbarn, jóladót kerti og spil
Jarðýta sími og hræ
Djöfullinn ryksuga Doktorinn Phil
Dulítið sokkur og bæ
Akur, tvinni, tað og ull
Trausti, leður, prímus,
gítar, sími, síll og bull
sígó, bjór, HÆ VÍMUS.
(Nokkrir hlutir sem eru umhverfis mig þessa stundina):
Blýantur, minnisbók, borðhnífur, sími
bjórflaska, umslag og lest.
Auðkennislykill og ónotað rými,
afgangur lyfja við pest.
Megas múmía sviti og blár
Marmara stytta frá Kína
Freðýsa, parket, fölbleikur nár
Fjólmundur, Bragi og Stína
(Þetta birtist upphaflega á hagyrðingamóti þar sem yrkisefnið var steypa)
Bullið fagurbláa skín,
bílum ökum nýjum.
Aldrei vilja innrauð svín
ómþýtt plútóníum.