Þótt ótrúlegt megi virðast ætlaði ég að fara að minnast á Ilminn... frábær bók...
Biblían
Fyrst Góði dátinn og Sjálfstætt fólk eru þarna, þá er allt gott. Mætti bæta við Fávitanum eða Glæp og refsingu eftir Dostojevskí og Hundrað ára einsemd eða Ástin á tímum kólerunnar eftir Marquez.
Biblían
Fóru þeir rétt með? - Ertu sáttur?
Ætli ég verði ekki að skjóta inn Don Kíkóta. Enginn yfirbókalisti án hans.
Ekki gleyma Birtingi Voltaires!
Og Íslendingasögurnar. Þær eru bara svo misgóðar.
Já, Njála að sjálfsögðu, vér gleymdum henni á lista vorum.
Dauðinn á skriðbeltum eftir Sven Hasel,
Byssurnar í Navarone eftir Alistair MacLean,
úr því að menn eru farnir að minnast á spennusögur.
Já og Öxin og jörðin er besta nýja íslenska skáldsagan sem ég hef lesið lengi.
Söngvar satans - Salman Rushdie
Óbærilegur léttleiki tilverunnar - Milan Kundra
Fear and loathing in Las Vegas - Hunter S. Thompson
The vampire Lestat eftir Anne Rice. Afbragðsgóður lestur.
Hafið þið aldrei lesið bækur eftir konur? Hilmar er sá fyrsti sem nefnir bók sem kona hefur skrifað.
Hér kemur uppljóstrun: Það er allt í lagi að karlar lesi bækur eftir konur - þær eru ekki allar 'kerlingabækur'!
Ein vinsælasta bókasería seinni tíma er Harry Potter eftir J. K. Rowling, listalega vel skrifaðar bækur og ekkert endilega fyrir börn og unglinga... ég hafði allavega lúmskt gaman af...
Líka kvenmaður, til að kvenþjóðin fái sinn skammt
Hafið þið aldrei lesið bækur eftir konur?
Jú, fjölda bóka eftir Agöthu Christie svo vér nefnum það fyrsta er oss dettur í hug.