Svei.
En takk, Hildisþorsti. Ég var ekki búin að sjá þetta áður, og það er rétt hugsanlegt að ég þekki mann og annan sem hefðu gott af að sjá þetta líka.
Endursendir slóðina. Lítur á dagatalið.
Og ef fólk er ekki búið að sjá Mosh með Eminem ... það er þess virði að kíkja.
Fyrst að við erum komin á þessar slóðir má ég til með að benda á síðuna Drengurinn sem gargaði Írak . Ég hef ekkert um sannleiksgildi þessarar síðu að segja, en ef sannleikskorn finnst þarna þá er það miður.
Úff, hann gerir Írösku þjóðinn jafn illt til, ef ekki verra en Saddam.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Ef helvítið verður kosið aftur, þá fara samskipti Ameríku og Evrópu að minna á samskipti heimsálfanna í 1984.
Stríðinu í Írak er lokið. Stríðinu í Írak hefur alltaf verið lokið.
"Major combat operations in Iraq have ended"
- George W. Bush í maí 2003
Og þar hafið þið það.
To occupy Iraq would instantly shatter our coalition, turning the whole Arab world against us and make a broken tyrant into a latter-day hero ... assigning young soldiers to a fruitless hunt for a securely entrenched dictator and condemning them to fight in what would be an un-winnable urban guerilla war. It could only plunge that part of the world into even greater instability.
- George Bush eldri í bókinni A World Transformed, árið 1998.
Og þar hafið þið orð föðursins.
Faðirinn var allt öðruvísi forseti en sonurinn, taldist t.d. til hófsamari arms repúblikanaflokksins en eigi hægri armsins líkt og Bush yngri. Hann var á sínum tíma m.a.s. andstæðingur Reagans og kallaði stefnuskrá hans í efnahagsmálum "vúdú-galdra". Hann endaði síðan sem varaforseti Reagans eins og oft gerist í svona tilvikum.
Já, ég kunni alltaf sæmilega vel við eldri Búskinn á sínum tíma. Hann hafði tvo eiginleika sem eru leiðtogum mikilvægir - hófsemi og yfirvegun. Sonurinn virðist því miður hafa tamið sér hvorugan þeirra.
Hann hafði líka ekki þessa áru um sig að hann væri stjarnfræðilega heimskur eins og sá yngri. Hann lét Quale um það, sá var dásamlegur.
Bush eldri var af gamla skóla bandarískrar utanríkisstefnu. Hún var ríkjandi í báðum flokkum út flest öll kaldastríðsárin og gekk út á samráð og samvinnu með nánustu bandamönnum. Ég sakna þeirrar stefnu.
Bush eldri var ekki svo slæmur, fyrir heiminn í það minnsta. Eins og Vlad benti á var hann úr hófsama armi repúblíkanaflokksins, svona eins og Ike í gamla daga. Því miður virðist þessi armur flokksins eiga undir högg að sækja og getur lítið gagnvart froðufellandi popúlistaskíthælunum í hægri arminum.
http://www.bushflash.com/year.html
Veit einhver hver á ljóð og/eða lag og eða söng sem er spilaður undir þessu myndskeiði?