Réttir upp hönd Platan "Nina Hagen Band"(1978) er einhver besta afurð pönktímans í heild sinni. Einhvernveginn mjög fáguð og einstaklega hrá í sama pakkanum. Ogö lagið "Naturträne", maður! Hún fór alveg upp fyrir háa--Cið, maður!
Hver man ekki eftir Mozart, þar fór stuðbolti, helv góður á tónleikum en rokkaralífernið varð honum að falli
Brestur í óstöðvandi grát
Nei, ég kynntist þessu manni fyrst í gegnum Peel Sessions. Þar vissi maður að væru mögulega á ferð bönd sem ættu eftir að láta af sér kveða enda uppgötvaði hann þau allmörg. Ég gerði mikið af því hérna í gamla daga (áður en Netið kom) að panta umrædd session af breskum póstlista. Þá var ég mikið í dauðarokkinu og yfirleitt fyrstur með nýjasta efnið. Var alltaf löngu búinn að heyra í vissum böndum áður en nokkur maður heyrði í þeim hér.
Ertu nógu gamall til að muna eftir þættinum Þrumur og Eldingar á rás 2 í umsjón Andreu rokkömmu?
Ég er það örugglega en man þó ekki eftir téðum þætti.
Æji ég er aftur villt...
Hvaða voða ranghalar eru þetta hérna!
Byrjar að reka bandspotta til baka út um hurðina