Gleðilegan vetur, bagglýtingar góðir, og skál.
Kom fagnandi vetur með með rauðvíni, ostum og spírakertum. Góðar heilsur í vetur!
Skál til allra á Fróni, ríki vetrarkonungsins. Hér er rigning og svalt, má vita, en engin von á snjó.
Vér óskum yður og öðrum Bagglýtingum góðs vetrar þó eigi láti vetur konungur sjá sig hjá yður. Skál !
[ Vetrarkoman er oss að vísu eigi gleðiefni. En líklega er veturinn yfirleitt talsvert skárri en 38 stiga hiti ]
Gleðilegan vetur (kláraðist hann samt ekki í síðustu viku ? Held það og að nú verði pása á kuldnaum fram í mars - vona það alla vega)...
En hvað um það - Gleðilegan vetur öllsömul (eftir 1.klst.og 14.mín) !
Skál fyrir nýjum vetri. Dregur loks tappan úr ákavítisflöskunni sem honum var gefið og tekur vænan gúlsopa
Til hamingju með veturinn öllsömul. Ég ætla að forða mér niður í Baggalútíu Neðri, það er ekki hægt að klóna í þessum kulda.
húkkar far með Hórasi niður í Baggalútíu Neðri
Bah!
Gleðilegan vetur greyin mín. Tek ekki undir orð Nafna um kalblettina. En vel þykir mér veturinn fara af stað með frosti og stillum. Ekta veður til ákavítisdrykku þegar fer að skyggja.
Tekur upp klarínettuna og spilar klarínettukaflan í árstíðunum eftir Vivaldi