Ég sofnaði nú síðast í bíó þegar ég var dreginn á The Whole Ten Yards. Skelfileg mynd.
Ég hef aldrei sofnað í bíó. Hins vegar var ég að heyra sögu af manni sem sofnaði yfir AI og vaknaði upp með andfælum í lokasenunni með framtíðarvélmennunum. Honum brá svo mikið að hann öskraði mjög hátt. Fyndin saga.
Margar sem skara aftur úr, en myndin sem Jim Carrey lék í, Bruce Almighty var hin mesta hörmung. Eina leiðin sem Jim Carrey sér er niður eftir þessa mynd. Synd að sjá hann enda svona, einkum eftir snilldarleik í myndum einsog Ace Venture 1 og 2.Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Þú hefur þá ekki farið á Phantom menace?
topp fimm sem ég man eftir:
1. Exit to Eden (algjör hryllingur, Rosie O'Donnell í S&M outfitti, ég er sár á sálinni eftir þetta)
2. Battlefield Earth (Travolta sem 3 metra há geimvera?)
3. Star Wars: The Clone Wars (eða hvað þetta nú hét. )
4. Opinberun Hannesar (Senda manninn í fangelsi fyrir þetta)
5. Ken Park (vá....bara vá. )
Sá Erótíska mynd á Sýn rétt áðan. Sú mynd var ekki góð.
Ég verð að taka undir orð margra hér. Opinberun Hannesar er án efa ein versta mynd sem framleidd hefur verið.
Fyllilega sammála. Hún er sorp af verstu gerð. Svo fékk maðurinn styrk frá bæði Sjónvarpinu og Kvikmyndasjóði til að gera þetta rusl. Ömurlegt hneyksli.
Piff...það eina sem reddaði þeirri mynd fyrir mér voru 10 sekúndurnar sem vinkona mín lék í... annars var hún viðurstyggð!!
Ég ætla rétt að vona að þessi vinkona þín sé í viðeigandi sálfræðimeðhöndlun nú í dag.
Kinnkar kolli spekingslega Jú ... ég held það reyndar. Hrafn er auðvitað listamaður, við megum ekki gleyma því.
Ég fór í bíó og sá Blade Trinity. ÉG ER FÍFL!
Bölsótast og skammast
-
Nei láttekkisona, Sound of Music er prýðisgóð mynd. Vitanlega er betra að vera þó nokkuð drukkinn við áhorf, en það hefur heldur aldrei sakað.