— GESTAPÓ —
Sungið í bílnum
» Gestapó   » Dægurmál, lágmenning og listir
        1, 2, 3
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Semmning Semmningsen 16/11/04 18:05

Vegna umfjöllunar um Big Lebowski á öðrum þræði....

"Dude...dude...dude looking out my back door!

Semmning Semmningsen, • Formaður knattspyrnu- og gríðarreykingasambands Baggalútíu (K.G.B.)
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 17/11/04 13:03

Ég hlusta ævinlega á Patsy Cline á lengri leiðum, ef ég er ein í bílnum, og syng þá hástöfum með. Enginn er betri félagsskapur yfir heiði í blindhríð en blessunin hún Patsy.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 17/11/04 13:17

Semmning Semmningsen mælti:

Vegna umfjöllunar um Big Lebowski á öðrum þræði....

"Dude...dude...dude looking out my back door!

Svo er tilvalið að ljúka laginu með því að keyra á nokkrar ruslatunnur.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 17/11/04 16:39

Ég krefst þess að þessi leikur verði settur tafarlaust á lygilega vinsæla leiki... þó hann sé það ekki ennþá þá er hann alger snilld og ætti vitanlega heima þar.

‹opnar munninn gríðarlega og hefur upp raust sína› HAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAMRABORGIN RÍS HÁÁÁÁÁÁÁÁÁ OG FÖGUR... ‹horfir í kringum sig og roðnar›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Semmning Semmningsen 17/11/04 17:42

Sammála þér með snilldina.

Djassútgáfan af ".... Það var um kvöld eitt er Kötu ég mætti..." (og syngja svo öll hljóðfærin inn á milli þegar bil eru í textanum) hljómar alltaf afar sannfærandi í eigin eyrum á Miklubrautinni.

Semmning Semmningsen, • Formaður knattspyrnu- og gríðarreykingasambands Baggalútíu (K.G.B.)
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 17/11/04 17:55

Svínaðir á mig bölvaður! Reyndu að sletta saltpæklinum eitthvað annað!

‹Ökuníðinga kvikindi eru þetta›

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 18/11/04 15:53

hundinginn mælti:

Svínaðir á mig bölvaður! Reyndu að sletta saltpæklinum eitthvað annað!

‹Ökuníðinga kvikindi eru þetta›

‹raddar með hundingjanum›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hundinginn 25/11/04 11:25

‹Slekkur á græjunum í hvelli› Árans jólalög, hvílík plága!

Eigandi Kaffi Blúts. • Lifi sannleikurinn!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Semmning Semmningsen 26/11/04 14:56

Af hverju syngur maður ÞESSI lög á Hringbrautinni? Af hverju ÞESSI?!?!?

"Sugar...du-du-du-du-du-duuu........MMMMMM...Honey-honey..Du-du-du-du-du-duuuuu"

Ef þetta er ekki efni í rannsóknargrein...?

Semmning Semmningsen, • Formaður knattspyrnu- og gríðarreykingasambands Baggalútíu (K.G.B.)
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Enter 26/11/04 15:51

Semmning Semmningsen mælti:

Af hverju syngur maður ÞESSI lög á Hringbrautinni? Af hverju ÞESSI?!?

"Sugar...du-du-du-du-du-duuu........MMMMMM...Honey-honey..Du-du-du-du-du-duuuuu"

Ef þetta er ekki efni í rannsóknargrein...?

Guð minn góður! Þú líka?!

Þetta getur ekki verið tilviljun.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 26/11/04 15:56

Það þyrfti að setja upp nefnd til að rannsaka þetta fyrirbæri. Þetta er uggvænlegt.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 26/11/04 17:38

Heyrið mig! Ég hef ekki heyrt þetta lag í háa herrans tíð. Hverjir fluttu þetta aftur?

‹Raular...›
Sugar du du duru du du ooohh honey honey

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 26/11/04 17:44

Þetta mun hafa verið skemmtisveitin The Archies. Ég á mér skemmtilega minningu sem tengist þessu lagi, og einnig Enigma dulkóðunarvélinni. Segi kannski frá því í félagsriti fyrst ég er farinn að viðra tölvufræði á þeim vettvangi.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 7/12/04 13:50

ROOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOXANNE you don't have to put out the red light...

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
        1, 2, 3
» Gestapó   » Dægurmál, lágmenning og listir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: