Nei, Stefán kemur ekki beint við sögu, í það minnsta skrifaði hann hvorki sögu né handrit.
Nei hún myndi ekki flokkast sem gamanmynd, en það má svosem brosa að sumum atriðunum.
Hvað er drengurinn að gera úti á hjóli svona seint og í myrkri? Í minni sveit eiga börn ekki að vera úti á þessum tíma og það eru ábyggilega fleiri sammála mér í því.
Er þetta einhverskonar sálrænn spennutryllir og drengurinn hugsnalega ekki af þessum heimi?
Ég samþykki orð Tinna í einu og öllu, svona illa uppalin börn geta ekki verið af þessum heimi.
Svona barasta, enga útúrsnúninga! Svaraðu spurningum mínum og ekkert múður!
Er þetta kannske Sixth Sense?
Svar við fyrri spurningu: Ja, jájá, alveg eins. Já.
Svar við seinni spurningu: nei, ekki alveg svo sálræn kannski.
Ég held að ég verði að fá meira um tímabilið. Svo ég spyr : er myndin eldri en 14 ára ?
-
Er myndin kannski ekki bandarísk?
Þetta er ekki Irreversible?
Svona til að pota þessu aðeins áfram þá er hér ekki um að ræða neðanjarðar kvikmynd, heldur fremur þekkta Hollywood mynd.
Breyt: virðist ekki hafa þurft á poti að halda, jú myndin er bandarísk og ekki Irriversible.
Magnað, það voru einmitt tveir drengir að hjóla framhjá glugganum hjá mér með spil á dekkjum, djöfull var ég hræddur. En ég er nokkuð viss að þeir voru af þessum heimi svo kannksi var ekkert að óttast.
Ég veit ekki. Children of the corn eða village of the damned.
Er þetta máske Martröð á Álmstræti?
Nei Frelsi er ekki með rétt svör, þó þau séu vissulega áhugaverð.
Childsplay?
Nei ekki get ég sagt að það svar sé nær sannleikanum en fyrri svör.
Childsplay?
númer 2, 3, 4 ,5 ,6 the wedding eða hvað sem hún hét... Bride of chucky?