http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=1313&postdays=0&postorder=asc&start=600
Við skulum forðast að endurtaka þetta.
Ég er nú nokkuð stoltur af þessu....glottir
ho ho ho ho ho ho hí hí hí hí hí hí ha ha ha ha ha ha!
Bara deila með ykkur fyndninni. Stekkur hæð sína
Hér eru gamanmál á enskri tungu.
Two atoms are walking down the street and they run into each other.
One says to the other,
"Are you all right?"
"No, I lost an electron!"
"Are you sure?"
"Yeah, I'm positive!"
-
Skabbi var á bar og sat að sumbli. Þegar hann var búinn að fá nóg og ætlaði að standa upp af barstólnumdatt hann beint á andlitið. Hann reyndi að standa upp, en datt aftur. Þá skreið hann út að hurð. Þar
reyndi hann að standa upp og aftur datt hann. Hann skreið út og ákvað að skríða þessa 600 metraheim til sín. Þar reyndi hann enn eina ferðina að standa upp og enn sama sagan hann datt. Hann skreiðupp stigana og skreið svo upp í svefnherbergi og datt beint á andlitið í hjónarúmið og sofnaði.
Morguninn eftir vaknaði hann við að konan hans öskraði: „Skabbi varstu á fylliríi eina ferðina enn." Já,sagði hann.
„Þeir voru að hringja frá barnum, þú gleymdir hjólastólnum aftur."
Einu sinni var grænn kúreki á grænum hesti á leiðinni niður grænan stíg í grænni eyðimörk. Svo kemur hann að grænum kúrekabæ, fer að næsta græna bar, bindur græna hestinn sinn með grænu reipi við grænann staur fyrir utan græna barinn og gengur inn.
Gengur svo græni kúrekinn eftir græna gólfinu í átt að grænum barstól og sest niður. Svo bankar hann í græna barborðið og biður græna barþjóninn um grænt viskí. „Í einum grænum!“ svarar græni barþjónninn og hellir grænu viskíi í grænt glas, leggur það á græna borðið og ýtir til græna kúrekans.
Á þeirri stundu opnast grænu bardyrnar og inn eftir græna gólfinu gengur fjólublár kúreki. Þá segir sá græni; „Hey þú! Ert þú ekki í vitlausum brandara?“
hahahahaha... Hilmar hættu þessu veltist um af hlátri
Fær hláturskast Þetta er besti 'fáránleikabrandari' sem vér höfum lengi séð.
Þetta var mér sagt einhverntíman þegar ég var lítill að væri atóm-brandari. Ég veit nú ekki hvað er til í því, en hér er þetta engu að síður.
Einu sinni sátu tveir fílar uppi á þaki og voru að prjóna marmelaði. Þá sagði hinn : „ þetta er allt í lagi pabbi hans á sjoppu. “
-
2 beljur sát uppi í tré, saumandi hafragraut, þegar gíraffi flýgur skyndilega framhjá. Þá segir önnur beljan: „ Heyrðu, var þetta ekki Prins Póló? “
Oft kemur grátur eftir skellihlátur!
setur upp púrítanskan umvöndunarsvip
Hvernig var aftur gamli brandarinn sem er pönslínuuna þar sem páfagaukur gargar eitthvað: "Rok og rigning, lestin er að farast" eða eitthvað í þá áttina...ha?
Andskotinn! Aldrei getur maður munað neina brandara.
Það var eitthvað með að troða honum ofan í nærbrækur. Meira man ég ekki að svo stöddu.
-
Man ekki einhver eftir gömlum og fúlum bröndurum og kannski einhverri norðlenskri fyndni með pönslínum eins og "Það er naumast að þú heldur uthan um skaptið, sthelpha...!"
Já að fara á Akureyri er einn stór brandari..!!! hlær hrossahlátri