Sá er sagður hlæja best er síðast hlær.
En ég segi að betra yrði að hlæja saman.
Nei.
Stundum hlæ ég bara einn með sjálfum mér.
stundum hlæ ég að tölvuni fyrir að vera svona lengi að gera eitthvað.
Sá hlær best sem síðast hlær? Ónei, sá sem hlær síðast er bara með hægan "fattara" og er því lengi að fatta brandarann.
Getur verið, en hann er samt heimskastur af því að hann tók lengstan tíma í að fatta brandarann, og hugsanlega þurfti að útskýra hann fyrir honum.
Þoli ekki þegar fólk endurtekur eitthvað fyndið sem það heyrði t.d. setningu í bíómynd. Verður að endurtaka hlutina til að láta okkur hin vita að það náði djókinu.
"En það var bara eitthvað svo fyndið, hvernig það kom út úr honum, skilurðu?"
Einmitt.
HAHAHHAHHAHHAHHAHAHAHAH!
Ha ?
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=1313&postdays=0&postorder=asc&start=600
Við skulum forðast að endurtaka þetta.
Haha! Hvernig dettur þér í hug að þetta muni endurtaka sig? Hahaha!
Hey ég kann einn brandara:
Af hverja hlæja hafnfirðingar alltaf að sama brandaranum þrisvar?
Í fyrsta skipti þegar hann er sagður, í annað skipti þegar hann er útskýrður og í þriðja skiptið þegar þeir fatta hann.
stundum hlæ ég að tölvuni fyrir að vera svona lengi að gera eitthvað.
já, AÐ henni - ekki MEÐ henni! ritar broskall með stóru D-i