Hávirðulega yfirvald.
Eg hefi rekist á hnökra nokkra er til vandræða meiga teljast. Hugðist eg finna vísu eina á þræðinum "kveðist á" er ég hugði vera á síðu 30-40 u.þ.b. Vissi ég nokkur orð vísunnar og hefði getað fundið með leit. Ekki fann ég leit, þrátt fyrir leit. Ekki gat eg heldur hoppað beint í síðu t.d. 30 heldur neyddist til að þokast að markinu síðu fyrir síðu. Bakaleið styttri hugðist eg fara með því að velja mín skrif finna þar vísuna og hoppa beint á staðinn á þræðinum, en er það var gert stökk ég beint á upphaf þráðar og var engu nær - heldur fjær.
Væri ekki gjörlegt að stofna fjallavegafélag og leggja eins og einn veg svo hin ýmsu náttúruundur yrðu aðgengilegri. Legg til nafnið "Fjallvegafélagið Slóðin(n)"..... eða nei annars, gæti misfattast, þið eruð auðvitað engir slóðar - heldur hitt.
Með vinsemd og virðingu.
Barbapabbi.
Þetta verður tekið til íhugunar og yfirlegu. Ég hef þegar undir höndum allítarlegt hnökratal sem ég reyni að grynnka á þegar tími vinnst til.
Enter er enginn Center, hann sækir fram ellegar verst kröftuglega
Þetta verður tekið til íhugunar og yfirlegu. Ég hef þegar undir höndum allítarlegt hnökratal sem ég reyni að grynnka á þegar tími vinnst til.
Verður þá gefið út fyrir jólin Hnökratal Baggalúts?
Þetta verður tekið til íhugunar og yfirlegu. Ég hef þegar undir höndum allítarlegt hnökratal sem ég reyni að grynnka á þegar tími vinnst til.
Verður þá gefið út fyrir jólin Hnökratal Baggalúts?
ábyggilega snuðrulaust í ofanálag