Ég fór í sakleysi mínu inn á síðuna "Fréttir" og þar var auglýsing um þráðlaust internet frá einhverju fyrirtæki... Allt gott og blessað með það en þegar ég ætlaði að fara í valslánna efst eftir að hafa skoðað fréttirnar þá sá ég mér til mikillar skelfingu að valmyndin sem opnaðist er maður smellti á "Heim" takkann fór undir áðurnefnda auglýsingu þannig að ekki sást nema í lítinn part af valmyndinni. Þetta er fyrir neðan allar hellur.
Jamm... ég lenti í svipuðu. Á hinn bóginn gleður mig að "alvöru" auglýsingar séu farnar að birtast (aftur) á Baggalútnum, því væntanlega þýðir þetta tekjur fyrir strákagreyin. Ég þarf því ekkert að styrkja þá eins og stóð til.
Ég get bara tekið þessar 15 milljónir sem ég var búin að safna með dósasölu og mansali og keypt eitthvað fallegt handa mér.
Hún vekur ugg þessi auglýsing, sér í lagi finnst mér að ADSL aðgangur ætti að vera með öllu ókeypis.
Ja ljót er ef satt er !
Auglýsingar eru nú til þess gerðar að gleðja okkur og auka ýmsar hvatir.
-
Það hefur að einhverju eða öllum hluta mistekist hér, því liggur nú beinast við að koma þeim skilaboðum til RITSTJÓRNAR einfaldlega að leggja þessar auglýsingar fyrir nefnd skipaða, samsíðu bræðra valda af handahófi í hvert sinn til að vega og meta gjæði auglýsingarinnar.
- Gefur frá sér vellíðunarstunu
Auglýsingar eru verkfæri djöfulsins. Hann hefur greinilega náð fótfestu í ritstjórn Baggalúts. Forði sér hver sem betur getur til www.femin.is
hví skyldum við hræðast djöfulinn ? ? ?
Við sem höfum haft D. Oddson yfir okkur í ja hvað er það nú 13 ár ! Brestur í óstöðvandi grát
Auglýsingar eru verkfæri djöfulsins. Hann hefur greinilega náð fótfestu í ritstjórn Baggalúts. Forði sér hver sem betur getur til www.femin.is
Þakka þér fyrir að benda mér á þennan Femin vef. Ég hef nú þegar skráð mig í vínklúbbinn, pantað mér KEEPER leggangatappa, túpu af kuntukoppafeiti og síðast en ekki síst gömnunargræjusett (fyrir tvo).
Það væri nú munur ef svona spennandi tilboð væru á Baggalútsvefnum.
... og allt er þetta auglýsingum að þakka !?! Springur úr hlátri
Já sko Salvador. Taktu þér nú brauðristina til fyrirmyndar.
Og lestu og lærðu. http://www.jacopastorius.com
Sko djöfullinn hefur náð þér. Megi Gunnar í kross og Snorri betill vera með þér og þinni fjölskyldu.
Ég fór í sakleysi mínu inn á síðuna "Fréttir" og þar var auglýsing um þráðlaust internet frá einhverju fyrirtæki... Allt gott og blessað með það en þegar ég ætlaði að fara í valslánna efst eftir að hafa skoðað fréttirnar þá sá ég mér til mikillar skelfingu að valmyndin sem opnaðist er maður smellti á "Heim" takkann fór undir áðurnefnda auglýsingu þannig að ekki sást nema í lítinn part af valmyndinni. Þetta er fyrir neðan allar hellur.
Æi, þetta er rétt - það er alltaf svona þegar Enter fer til útlanda! Hann er því miður sá eini sem kann lagið á þessum andskotans tæknimönnum.
Ég mun ræsa út bakvaktargengi til að skoða málið.
Sannleikurinn verður ekki í askana látinn kæru vinir - því miður. Þið verðið því að sætta ykkur við fáeinar auglýsingar.
Því er ekki að leyna að lífið hér á útgáfunni væri auðveldara ef gestir sæju sér fært að kaupa örlítið fleiri útgáfubækur.
Eftir nokkrar ábendingar í viðbót gæti þetta orðið laumupúkaþráður. Gaman að því!
Eftir nokkrar ábendingar í viðbót gæti þetta orðið laumupúkaþráður. Gaman að því!
Ég ætlaði að fara að laumupúkast undir almennu spjalli en þar var var búið að loka fjölmörgum þráðum. En það er svo sem ekkert verra að laumast hingað.
Herbjörn þarftu virkilega orði að laumupúkast. Er Konni einhvað vondur við þig núna
Herbjörn þarftu virkilega orði að laumupúkast. Er Konni einhvað vondur við þig núna
Nei, nei, Konni hefur haft öðrum hnöppum að hneppa en að atast í mér.
Mér finnst bara þessi laumupúkaleikur svolítið skemmtilegur. Þessu má líkja við það, þegar maður fór í feluleik í gamla daga.
Þetta er nú hálfómögulegur laumupúkaþráður, miðað við lögmál hinna.
Það vantar fleiri þræði hér svo þessi flytjist á síðu 2.