AAAAAAAAAAA!!!
Hvað eruð þið búnir að gera?!
Ég ætla ekki að þreyta lesandann með bölvi, ragni og hinum ýmsu athugasemdum sem ég gæti látið falla um þetta nýja og vægast sagt hræðilega útlit, en læt uppi hávær mótmæli gegn þessum breytingum. Það er óþarfi að fara með bílinn sinn á verkstæði ef það er ekkert að honum!
Blótar herfilega og rífur fjaðrir sínar, strunsar út af sviðinu og skellir hurðinni í 7 hringi!
AAAAAAAAAAA!
Hvað eruð þið búnir að gera?!
Ég ætla ekki að þreyta lesandann með bölvi, ragni og hinum ýmsu athugasemdum sem ég gæti látið falla um þetta nýja og vægast sagt hræðilega útlit, en læt uppi hávær mótmæli gegn þessum breytingum. Það er óþarfi að fara með bílinn sinn á verkstæði ef það er ekkert að honum!
Blótar herfilega og rífur fjaðrir sínar, strunsar út af sviðinu og skellir hurðinni í 7 hringi!
Þessi á skilið að fá Thule
Auðvitað er þetta erfitt fyrir okkur gömlu mennina, en þetta venst eins og allt saman...
Þetta „lúkk“ er einmitt fyrir okkur gömlu mennina - minnir á Ísafold eða Þjóðólf sem ég las með áfergju sem unglingur.
Mér er nokk sama um Ísafold og Þjóðólf, enda bæði sorprit. Þetta er Baggalútur og þegar hann tekur jafn umfangsmiklum breytingum og raun er á, er eins gott að menn hafi vaðið fyrir neðan sig. Mér var vægast sagt mjög brugðið þegar þetta átti sér stað og hef ekki enn jafnað mig. Baggalútur var orðinn fastur punktur í tilverunni, en nú veit ég ekki...
Setur upp raunarmæddan svip og huggar sig við happapeninginn, snöktandi og skjálfandi
Ég kýs enn að koma fram án andlits fremur en að taka mynd með hauspoka.
Þetta útlit er ekki einvörðungu öööööömurlegt, heldur er Gestapóið allt út og suður, eins og holdsveikisjúklingur. Þetta er því síðasta ferð mín hingað í þetta ágæta pó. Þakka innilega fyrir mig en bið jafnframt tæknimenn Baggalúts að skammast sín. Ég mun trúlega halda áfram að lesa fréttir en þó með hálfum huga og nokkrum viðbjóði.
Ert þetta þú Jóakim? Það er nú meira en undarlegt að þú sért ekki enn búinn að jafna þig á breytingum. Það er leitt að missa þig. Þú ert ágætur.
Auðvitað Rindill minn. Ég er vinur litla mannsins.
Klappar litla manninum og gefur honum hundakex í skiptum fyrir að hann pússi skó konungs.
Nei, þetta er ekki ég. Ég tel það heigulshátt að koma ekki fram undir nafni og mynd. Ég hef ekkert að fela, en er alls ekki búinn að jafna mig og geri það sjálfsagt aldrei. Er reyndar sammála nafnleysingjanum í flestum atriðum, en hef ákveðið að grafa undan breytingunum innan frá, en ekki að hætta. Sótbölvar
En forvitnilegt væri að vita hvaða gestur er svona óánægður (þ.e. ef þetta er einhver er komið hefur fram undir nafni - sem eigi þarf endilega að vera)...
leiðindi sem óþarfi er að hafa eftir
Þar hafið þið höfundarnafnið. Þó Lúturinn kjósi að fela þau nöfn sem gestir gefa sér þá eru nöfnin þarna til staðar.
leiðindi sem óþarfi er að hafa eftir
Þar hafið þið höfundarnafnið. Þó Lúturinn kjósi að fela þau nöfn sem gestir gefa sér þá eru nöfnin þarna til staðar.
Rawiaz er einn af þeim elstu notendunum sem kjósa að skrá sig ekki inn eða nota mynd... hef allavega oft séð kauða... þ.e. þá sjaldan sem hann mætir hérna... þetta er orðið að meiri he.. hleypur út án þess að klára setninguna
Bið lesendur forláts, það var hrein gleymska að kvitta ekki undir, því eins og fram kom ætlaði ég að birta nafn en ekki mynd þar sem ég vil síður verða fyrir áreiti á götum úti. Nú er ég líka þegar búinn að ganga á bak orða minna og koma hingað aftur. En það var nú bara af því ég drakk of mikið og villtist.
Ég er tilbúinn til að biðjast afsökunar á ummælunum ef þau hafa sært. Það breytir því ekki að Baggalútur er allur út og suður eftir breytingar.
Rawiaz
OG... þess má geta að innskráningarkerfið hefur aldrei viljað þýðast mig. En það segir nú kannski meira um mig en kerfið.
Rawiaz[/i]