Mikið er þetta lekker.
۞Ö۩
Gætuð þið, ef þið finnið, sett inn tákn eins og óveðursský, þrumur og eldingar og skrípóhauskúpur. Það væri frábært að geta blótað eins og í viggóbókunum.
Ég vil ekki íþyngja ritstjórn meir en ég hef gert hingað til, en skemmtilegt væri ef hægt væri að setja inn ♪ á einfaldan hátt, ég hef svo gaman af því það syngja...
Langt er síðan vér höfum nöldrað hér en vér vonum að ritstjórn fylgist eigi að síður með þræði þessum. Hér er nöldurskammtur dagsins:
(1) Oss finnst komið í ljós að nauðsyn sé að hafa e.k. friðargæslu (eða eitthvað hliðstætt) í Nýjum félagsritum (sbr. það sem gerðist í dag).
(2) Er Nýjum félagsritum er svarað í glugganum Orð í belg veldur það stundum óþægindum hvað sá gluggi er lítill, þetta örlitla kýrauga dugar einungis ef svarið er mjög stutt. Annars verður að slá svarið inn annarsstaðar til að hafa yfirsýn yfir það og 'líma' það svo inn.