Sælt veri fólkið. Átti bara leið framhjá og datt í hug að heilsa upp á ykkur. Halló?
Nú- það er enginn við. Ojæja.. Sjáumst næst.
Andlitsbókarrollan breytti þessum stað í eyðimörk.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Sælt veri fólkið. Átti bara leið framhjá og datt í hug að heilsa upp á ykkur. Halló?
Nú- það er enginn við. Ojæja.. Sjáumst næst.
Hrökklast margfalt meira afturábak en nokkru sinni fyrr og hrasar margfalt meira við en nokkru sinni fyrr
Víst er hjer einhver (með fyrirvara um að vjer sjeum alveg örugglega einhver). En yður var sem sagt ekki rænt af óvinum ríkisins úr því að þjer birtist núna hjer?! Klórar sjer í höfðinu
Margfaldlega velkomnir til baka Ljómar upp eins og 12756 km há plútóníumfriðarsúla.
Skál! Sýpur á fagurbláum, sjálflýsandi drykk
Æ, farið nú ekki að grenja. Brestur í óstöðvandi grát
dustar mesta rykið af barborðinu og sparkar frá haugryðguðum kakópotti á gólfinu
Galdrt, þú átt rafmæli. Hvar ertu bannsettur?
reynir að kreista nokkra dropa úr löngu uppþornaðri blútdælu
Kíkir inn í Leit að Herbirni en finnur bara kokkinn Er Herbjörn hér?
bendir í hina áttina
Ég sá hann hlaupa þangað. Hlauptu. Þú nærð honum pottþétt.
Jæja góðan daginn!
Er ekki kominn tími til að poppa þennan stað aðeins upp?
Setur upp nýjar dælur með indverskum fölblút, belgískum súrblút og bæverskum hveitblút
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Kom bara við til að brýna klærnar
Hrekkur upp með andfælum og hnerrar svo að hann hendist út úr hilluskömminni
Hvaða læti eru þetta eiginlega?
Það er ekki svefnfriður hérna.
Brestur í óstöðvandi grát
Starir þegjandi út í loftið
Það er ekki beðið um lítið.
Tekur fram rykfallið glas og ætlar að láta renna í það úr krananum en það eina sem gerist er að ægilegt hvæs heyrist og úr kranafjandanum sprautast bara rykský svo ekki sést handaskil
Hóst, hóst.
Brestur í óstöðvandi grát