réttir Skabba tuttugu staup af Ákavíti og afhvendir Júlíu tvöfaldan expresso og sódavatn. Ásamt súpu dagsins sem er Rjömalöguð Humarsúpa
Værirðu til í að smakka hana fyrir mig og gefa mér dóm um hana?
Vaknar af værum blundi Ég sé að hér er allt með ró og spekt. Best að grea sig kláran fyrir kvöldið.
Frelli! Er kaffi á könnuni? Svo væri þjóðráð að bjóða upp á skonsur, til að sjá hvort Vamban léti ekki sjá sig.
Réttir Hundingjanum kaffi
Skonsur eru ekki bara Skonsur, Eins og vamban segir þá eru Skonsurnar sem hann vill með mjög langan bökunartíma og þarf einnig marga ofna. Það þyrfti að vera einn ofn á Skonsu. Svo tekur það þessar Skonsur um 18 ár að hefa sig þannig að spurningin er eigum við ekki þá bara að drífa okkur í þessu Hundingi. Annars vantar mig einnig fullt af ofnum. Eitthvað kvennfólk sem býður sig fram?
Borðar humarsúpuna og læst ekki heyra það sem fram fer
Mmm...bragðgóð; svarti piparinn gerir gæfumuninn - skerpir bragðið og gerir það meira spennandi. Brauðið er líka mjög gott - skilaðu kveðju til ömmu þinnar í eldhúsinu. Þetta á eftir að rokseljast hjá þér, Frelli minn.
Frelli! Get ég fengið frí frá dyravörðslunni í kvöld? Það er eitthvað svo fámennt og ég er ekki í vafa um að Júlía hagi sér vel hérna. Enda bý ég á hæðinni fyrir ofan og get komið niður ef ég heyri ólæti. Eða þá að Vamban léti sjá sig, þá fer allt í bál og brand hjá þér.
Með vinstri olnbogan á barborðinu, súpandi á Blút úr stórri könnu
Verður þú ekki að setja upp risaskjá fyrir Enska boltan á morgun annars?
Hallar sér fram á barborðið til að sjá súpuskálina hennar Júlíu Blesuð fáðu þér ábót! Ég trúi ekki öðru en Frelli býður þér ábót. Klárar úr könnunni og ropar
Ljómar upp
Fer bakvið Amma áfram með þig ég vil vera kominn með 20 lítra fyrir kvöldmatartímann!!
Kemur aftur fram glaður í bragði
Já já taktu þér frí. Og auðvitað verð ég með Enska í beinni.
Má bjóða þér ábót? horfir á Júlíu
Ég ætti nú að sleppa því, er að fara út að borða í kvöld...Jú, kannski ég þiggi smá súpu í viðbót, hún er svo góð. Við eigum heldur ekki pantað borð fyrr en eftir níu. Man allt í einu að það er alls ekki búið að panta borð, íhugar að gera það.
Arkar inn á staðinn, í vondu skapi
Búið að loka fjandans matsalnum! Hvernig á maður að geta unnið ef maður færi ekki síðdegisteið! Ég sagði þeim bara að eiga sig og fór snemma heim. Skítlegt alveg.
Hlammar sér í barstólinn tekur eina saltkringlu úr skálinni á borðinu
Bruggaðu fyrir mig grájarlste. Er ekki hægt að grilla samloku með skinku og osti hjá þér? Ég er glorsoltinn.
Fær sér aðra saltkringlu
Hellir upp á Grájarlste og býr til stóra samloku með skinku og osti setur hana í grillið
hellir upp á einn þrefaldan Honk Kong special og lýgur að Hakuchi að Júlía hafi boðið honum upp á drykkinn svo að manngreyið geti nú rölt þar yfir og spjallað við spússu sína svo hún geti róað hann
Samlokan verður til eftir smástund má ekki bjóða þér franskar með?
Tekur drykkinn. Brosir og skálar í átt til Júlíu og röltir til hennar, kallar í átt til Frella
Já takk, og kokteilsósu með.
Kyssir ungfrú Júlíu og sest hjá henni
Röltir með samlokuna, franskarnar, kokteilsósuuna og kókina
Svona er tilboðið.
Kemur inn sem snöggvast Fyrirgefið mér. Ég stein gleymdi að sópa og skúra í morgun. Hendist í gegn um eldhúsið til að komast í skúringaskápinn Sæl AMMA Frella mikið ertu fín í dag. Góð lykt af súpunni! Hendist fram aftur og byrjar að skúra á fullu Fyrirgefðu Hakuchi minn, viltu tyfta löppunum aðeins takk. Þetta er náttúrulega ósanngjarnt að dyravörðurinn sé alltaf settur í þetta. Stendur aðeins upp til að rétta úr bakinu
Afsakið þetta en við erum því miður í hallæri með mannskap á staðinn.
En yfirdyravörðurinn fær einnig borguð full laun skúringarkonu, þetta er rosa duglegur strákur. Bara að þeir væru fleiri svona.
Dettur á gólfið með báðar hendur kreyptar í hjartastað DINK...
Fljótur Frelli! Gefðu honum saltkringlu úr skálinni á borðinu, þær eru álíka öflugar og nítrótöflur.