Heyrðu, ég er með hugmynd að lógói: Dökkbláar Flauelsnærbuxur (mitt gamla nick)
Já ég man það þegar Baggalútur var ekki í svo FORUM stíl og þeir gátu ekki ritskoðað mann eins mikið, það fór náttúrulega úr böndunum og ég man að ég lenti í miklu rifrildi við einhvern útlending sem notaði Coca Cola sem nikk, versti viðbjóður
Gengur inn og skimar í kringum sig Er hægt að fá hér drykk á þessum tíma dags?
Talar frá barnum Auðvitað þetta er kaffihús á daginn.
Láttu mig þá fá einn Sviss Mokka og sneið af gulrótarkökunni...bakaðir þú hana sjálfur?
Nei þetta er eftir hana ömmu, hún er að vinna í eldhúsinu. Sú gamla klikkar ekki á því er 94 ára gömul.
réttir Júlíu Swiss mokka og væna sneið af gulrótartertunni
Verði þér að góðu.
Er amma skrattans þá yngri en skrattinn sjálfur ? Klórar sér í höfðinu
Já miða við mína síðustu endurholdningu. Má bjóða þér eitthvað?
Últrakóbaltste
Gæðir sér á veitingunum um stund, hallar sér svo aftur í sætinu og horfir í kringum sig Skemmtilegur staður hjá þér, Frelli...notalegt að líta hérna inn í amstri dagsins. Þú fengir hiklaust fjórar stjörnur hjá mér.
Einn expresso takk, já og einfaldan viskí Lætur fara vel um sig
Kallar á eftir Frella engan klaka
Jahh einfaldan vískí ekki í klaka það á aldeilis að láta hárið vaxa.
hellir upp á expressó og hellir einföldum viskí í glas réttir feminista
Tillir sér niður og virðir fyrir sér guðaveigarnar og allt þetta áhugaverða fólk sem á staðnum er
Brýnir raustina Það er meira en klukkutími síðan vér báðum um últrakóbaltste
Afsakið!
Færir Vladimir tvo bolla af últra kóbaltste og kóbaltmolasykur með
Riðst inn að barnum Frelli! Ég ræð mig í dyravörðsluna! Það verða engin axarsköft hérna líkt og hjá A.H... Lemur í barborðið
Riðst inn að barnum Frelli! Ég ræð mig í dyravörðsluna! Það verða engin axarsköft hérna líkt og hjá A.H... Lemur í barborðið
Þú ert ráðinn.