Á þessum freysdegi i heyönnum langar mig að minna á eftirfarandi:
Í einum tölvustaf eru 8 stafkorn og 1,048,576 tölvustafir gera eina minnislest (2 í 20asta krafti).
Einhver andmæli?
Stekkur hæð sína yfir at vera búin að finna gáfurnar aftur ... en bíður átakta eftir viðbrögðum úr stúkunni [/b]
Merkilegt! Skál fyrir því!
Virðir Crick fyrir sér
Hmm... jaaaaááá...
Ég verð að hugsa um þetta
leggst undir feld
Sú hugsun læðist að oss að Crick kunni að vera undir áhrifum frá (að áliti voru) mesta málhreinsunsarfasista í heimi. Vonum vér að þeir gestir er eigi hafa áður séð það er vér vísum hér á verði eigi fyrir andlegu áfalli:
Guð minn góður, hvar er þetta lið staðsett?!
Þetta stríðir gegn öllum lögmálum Baggalútíu og því ber að eyða þessum samtökum hið snarasta!
Þessir hreintungufasistar kunna ástkæra, ylhýra ekki betur en svo að þeir skrifa Íslendingar með litlum staf. Fífl!
Enda mun forsprakki þeirra eigi vera Íslendingur heldur Belgi. Nú er orðið til fullt tilefni til að leggja Belgíu undir veldi Baggalútíu líkt og Holland Reynir að muna hvort Hakuchi lagði undir sig einhvern hluta af Belgíu í sumar
Svei mér ef ég hef ekki heyrt af þessum belga. Í mótmælaskyni við heimsveldastefnu þeirrar örmu þjóðar og þessa tiltekna einstaklings sérstaklega nota ég með vilja lítinn staf. Beri hann hag íslenskrar tungu fyrir brjósti ætti hann að sjá sóma sinn í að kynna sér núgildandi stafsetningareglur.
Sendur herlið til belgíu hið snarasta og kennum þessum bjálfum að virða íslenskar réttritunarreglur. Ræsir skriðdrekann til að sýna vilja í verki
Er Crick nokkuð skildur Omegaone?
Nei og hef aldrei verið gefin fyrir þann óþvera!
Hleypur út af vellinum og drífur sig í strutu ... fólkið í stúkunnu virðist sátt
Sú hugsun læðist að oss að Crick kunni að vera undir áhrifum frá (að áliti voru) mesta málhreinsunsarfasista í heimi. Vonum vér að þeir gestir er eigi hafa áður séð það er vér vísum hér á verði eigi fyrir andlegu áfalli:
Ekki er hægt að segja annað en að Þér hafi hitta naglan á höfuðið þar. Þessi smiðja hefur valdið mér miklum geðshræringum og vannlíðan. Gefur frá sér stunu
Íhugar að refsa sér með því að neita sér um kaffisopa í 1 klst. og 14 mín. vegna þeirra hefilegu mistaka að gleyma að logga sig inn. Ég er semsagt Gestur en ekki skyldur Omegaone. Leiðist eigin ömurleiki ...
Velkominn Crick, láttu fara vel um þig hérna á Baggalút...
Skál!
Tilvitnun;
"Einbeitni Íslendinga til varnar fjöreggi sínu gegn alþjóðasleðjunni ætti að vera jafn óbrjótanleg og skjöldur smiðaður úr hjarta hamars og sálu steðja."
Hreintunguherjarnir
,tilvitnun lýkur.
USSSSSSSSs
Sálu seðjum
semjum orð
Stelum steðjum
stundum morð
Dohhh..................helv. loggin.
Ok ok ég ætlaði ekki að vera með leiðindi. Þetta bara datt svona út.
Crick! þú ert vonandi kurteis persóna í hormónajafnvægi.
Velkomin.