Ég hef ákveðið að setja á stofn mesta verkefni sem mannskepnan og nykrar munu hafa tekið sér á hendur. Í þessu verkefni felast margar hætturnar, þið munuð missa vini og fólk mun hata ykkur en ávöxur þessa verkefnis bætir það upp margfalt.
Þetta er verkefni svo göfugt, að ekki mun það einungis bæta hag okkar, heldur bæta hag alls mannkynsins og með sameinuðum kröftum okkar útvaldra, kóbaltbættra, ofurgáfaðra hreystimenna mun okkur takast þetta!
ÚTRÝMUM ÞYNNKU
Hver er með mér!?!?!?!?
Færir sig hægt nær Þú ert ekki að tala um að hætta að drekka? Er það nokkuð?
Ónei, bara útrýma þynnku eftir drykkjuna.
Ég hélt að þú þekktir mig betur en svo.
Þá er ég með.
Ég kann bara ráð til að merja niður þynnkuna.
Hvar skal byrja?
Vanlíðan daginn eftir neyslu áfengra drykkja stafar af þvagræsandi áhrifum alkahóls. Því er skortur á söltum og vökva í líkamanum. Taktu bara inn 10-15gr af salti og 1L af vatni fyrir svefn og þú vaknar hress og kátur. Svo geturðu líka bara smellt þér á vagninn með mér og Sverfli. Annars er erfitt að eiga við þetta þar sem að áfengissameindin leysist upp í frumuhimnunum (líka í heilanum, sbr. áhrifin) og því frumurnar eins og hrímlekt gipald og lítið gagn að reyna að sulla þessu aftur inn. Held því miður að þjáningar þínar og alls mannkyns séu komnar til að vera. Láttu bara ekki pranga inn á þig Alka Seltzer eða álíka drasli, slíkt hefur bara lyfleysuhrif (sumsé virkar ekki en þú trúir að það virkar og því líður þér aðeins skárr).
Aldrei að segja aldrei, dr. Barbie, okkur mun takast þetta. Ég býð fram starfskrafta mína!
10 til 15 grömm af salti. OJ bara, eru það ekki tvær heilar matskeiðar eða svo? Þá held ég að það sé betra að glíma við þynnkuna eða bara sleppa drykkjunni.
... Taktu bara inn 10-15gr af salti og 1L af vatni fyrir svefn og þú vaknar hress og kátur ...
Er þá ekki hægt að blanda þessu út í drykkina?
Saltvatn er ekkert lostæti heldur. Maður fær sér bara popp og drekkur vatn með.
Væri ekki rétt að gera vísindalegar tilraunir á þessu ... á sjálfum sér?
Eða væri réttara að nota rindla í það? Hvar er Goggurinn?
...og minnka vímuáhrifin!? Ónei!
ég held að við ættum að byrja á því að strípa svona 1 g af kóbalti niður í frumeindir sínar, við getum notað sameindaþverilskurðtækið mitt til þess.
Við tökum svo eina natríumklóríðsameind (NaCl) og "klæðum" hana svo í nokkrar kóbaltsameindir þannig að fruman heldur að hér sé einungis um kóbalt að ræða, sem hún tekur væntanlega fúslega við.
Núna er komið salt báðum megin frumunnar og ætti þá að vera óhætt að drekka hvurn þann andskota sem maður vill.
Einhverjar athugasemdir?
grunar Mér sýnist að þú hafir verið tilbúinn með svarið þegar þú byrjaðir á þræðinum. grunar meira
Til hvers í djöflinum dönskum og dauðum ætti ég að gera það!?
hmm... þú segir nokkuð.
Hefur engum dottið í hug að Kóbalt-blandað Ákavíti gæti virkað...ég býð mig fram sem sjálfboðaliða, til að kanna það...
Eða kóbaltbættur Admirallinn.