Pahh, þessi er auðveld. "Tinni og stífluðu klósettin" heitir bókin og óupplýsti glæpurinn er sá að öll salernin í Bordoríu stífluðust á sama tíma. Undarlegt...
Tintin and The Alpha-Art gefur biblían www.tintin.be mér upp. Þar er bókin sögð fjalla um "sects" (les milieux des sectes) sem mér sýnist þýða sértrúar eitthvað, sértrúarsöfnuð eða eitthvað álíka.
Þar var hann eigi í pokabuxum.
Drykkjuvenjur íbúa Sýldavíu er nokkuð óvenjulegar. Að hvaða leyti ?
Er ekki sódavatn drukkið bak o fyrir og aldrei vottur af áfengi?
Þetta er svo nærri lagi að vér gefum rétt fyrir og Goggurinn á leik. Í Sýldavíu er einungis drukkið sódavatn.
Hér kemur ein auðveld: Hvað hét helsti andstæðingur Alkasars hershöfðingja?
$%##*@€^ Þetta er reginhneyksli. Þetta eigum vér að vita en getum eigi með nokkru móti munað Brestur í óstöðvandi grát
Viskí?
Apar? Kókoshnetur? Borgin Tapiocapolis?
Ef ég man rétt þá kemur ekki fram í bókinn Vandræði Vailu Veinólínó hvert eftirnafn Igors undirleikara er. Hann er þar bara kallaður Igor. En hvert er eftirnafn hans (a.m.k. í þeim útgáfum sem eru á frönsku)?
Alveg rétt ég mundi það ekki. Jæja spurning orðist þá svo: Hvað heitir Ívar eltiskinn undirleikari í frönskum útgáfum á Tinnabókunum?