Tíu mínútur yfir fjögur eftir hádegi.
19:30 ? (oss finnst eins og þetta hafi verið um kvöld en það gæti þó verið misminni)
Kolrangt
Getur verið að þetta hafi verið kl. 2 að nóttu ?
Nei alls ekki.
Eruð þið að gefast upp ræflarnir.Glottir eins og fífl
Ég á engar Tinnabækur lengur. Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Mínar lentu niðri geymslu. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið Já, ég veit, þetta eru helgispjöll.
Það sama gerðist hjá oss Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið. Vjer höfum reyndar um skeið verið að íhuga að grafa þær upp.
Var þetta kannski kl. 07:00 ?
Nú finnst oss allt í einu eins og þetta hafi e.t.v. ekki verið á heila tímanum heldur á einhverjum 'asnalegum' tíma. Bætum vjer því við þeirri ágiskun að þetta hafi verið kl. 11:11.
Ég geri ráð fyrir að það séu Tinnabækur í bókatíðindum. Er ekki verið að endurútgefa einhverjar þeirra núna í litlu broti?
Mínar lentu niðri geymslu. Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið Já, ég veit, þetta eru helgispjöll.
Geymslu!
Hverskonar andskotans bjálfi getur þú verið?
Ertu ekki húsbóndi á þínu heimili?
Tinnabækur eiga að hafa sinn réttborna stað í bókaherbergi eða inni í stofu.Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Og þetta er allt vitlaust hjá ykkur.
Vlad er samt að hitna.
Strunsar aftur út af sviðinu og skellir á eftir sér
13:37?
Nei og hér kemur eina vísbendingin sem verður gefin.
Þetta er á hálfa tímanum.
Úr því að þetta var á hálfa tímanum og vjer vorum að hitna þegar vjer giskuðum á 11:11 gæti þetta hafa verið 10:30.
Vjer óskum Vladimir til hamingju með rétt svar og réttinn.