Ég hef verið að reyna að lesa landafæði og náttúrufæði
Í sama dúr höfum vér reynt oss við lestur lífeðlisfræði, lífefnafræði og sameindalíffræði. Það mun eigi skemmtilegt sem það hljómar.
Ég er að lesa, mér til yndisauka, ævisögu Guðmundar Böðvarssonar; Skáldið sem sólin kyssti.
Vér lesum aðeins eigin dagbók, svo vér megum vita, hvað fyrir oss er lagt næstu daga.
Ég var að lesa gamla bankabók sem ég fann við tiltekt.
Hún endar verr en grískur harmleikur.
Var að byrja á Himnaríki og helvíti og er líka að glugga í einhverja alfræðibók um frumbyggja Ameríku. Ég má ekkert vera að þessu.
Skemmtilegu smábarnabækurnar, þá helst bókina "STUBBUR",
en fyrir þá sem ekki þekkja, þá er Stubbur ekki stór.
Hann er bara fimm ára gamall.
Stubbur er lagður í einelti af eldri bræðrum sínum tveimur, en allt fer þetta nú vel að lokum.
Män som hatar kvinnor.
Wolf and iron.
The Grand Design eftir nafna minn Stephen Hawking.
Ljómar upp
Góð bók.
Ég er að lesa skólabækur.
Ég er að lesa bók um atferli og sálfræði hesta...
...til að geta kynnst honum Blesa mínum aðeins betur.
Nýverið byrjuðum vér að lesa Ein á forsetavaktinni, um sjö daga í lífi frú Vigdísar Finnbogadóttur. Nokkuð góð afþreying og fræðandi um forsetaembættið. Eigi hugnast oss þó að lesa svona bók um núverandi forseta lýðveldisins.
Madaman er að lesa innihaldslýsingar páskaeggja, eins gott að föstudagurinn er langur.
Fyrr í dag (Þegar leiðinlegu frænkurnar komu í heimsókn) hóf ég lestur Söguþátta landpóstanna. Margfalt betri en leiðinlegu frænkurnar.
Fræðibækur um skipulagskenningar. Mikið hlýt ég að verða skipulögð einhvern daginn þegar ég er búin að lesa allar þessar bækur...
TIME goes to war. Samansafn greina úr tímaritinu TIME um þátttöku fyrrum sveitunga minna í westri í hinum ýmsu hernaðaraðgerðum. Athyglisverð lesning en að sjálfsögðu er sjónarhornið aðeins eitt; bandarískt.