— GESTAPÓ —
Besta "pikköpp" línan.
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3, ... 14, 15, 16  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 10/7/04 22:55

Maður gæti haldið að Leibbi væri eitthvað skyldur honum Tony C.....n.
Mér líkar ekki orðbragðið, sem drengurinn notar. Hvernig vogar hann sér að tala svona við jafn indæla stúlku og hún Mosa frænka er?

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 10/7/04 23:16

Halda mætti að hann hafi farið öfugu megin framúr í morgun.

‹Íhugar að setja Leibba Djazz á listann "Hugsanlegir óvinir ríkisins" fyrir tilraunir til að móðga forsetaembætti Baggalútíu en hvort hann lendir á þeim lista er ríkisleyndarmál›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 10/7/04 23:23

Hvers lags framkoma er þetta Leibbi? Ég man þá tíð er Leibbi Djazz var hress og skemmtilegur töffari. Þessi hegðan sæmir frekar vanþroska slúbberti. Hvað gerðist þarna í útlegðinni? ‹Ætli einhver hafi rænt Leibba og sett þetta fyrirbrigði í staðinn?›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 10/7/04 23:55

‹Lemur Leibba eins og hund.›Svona segir maður ekki Leibbi! ‹Minnist skyndilega að aðgát skuli höfð í nærveru sálar en kærir sig kollóttan og lemur Leibba aðeins meira›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Goggurinn 11/7/04 01:13

Skamm skamm!

Goggurinn. Vandamálaráðherra Heimsveldisins og varaforsetaherra. Sendiherra Páskaeyju. Staðfestur og rykfallinn erkilaumupúki. Stoltur eigandi eigin sálar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hilmar Harðjaxl 11/7/04 02:30

Hvað er drusla eins og þú að gera á svona stað?
Fyrirgefið, stóðst bara ekki mátið..

Það er ekkert sem getur ekki stöðvað mig!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 11/7/04 13:41

Það verður að klaga hann til Ömmu Hlaunar. Hún ætti sko að geta komið vitinu í hausinn á honum.

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Órækja 11/7/04 17:29

Ég biðst fyrirfram afsökunar á því að bæta við skilaboðaflóðið sem við kljáumst við hér þessa dagana en stóðst ekki mátið að skjóta hér inn einni "ísbrjóts" línu sem ég heyrði nýlega.
"Eruð þið hreinar stelpur? Ég er hreinn"
Ekki gekk þetta alveg upp hjá drengum þetta skiptið en hann vakti þó nokkra kátínu meðal annara viðstaddra.

Skrifandi undir síðan 2004
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 11/7/04 19:38

Ég bið fullur auðmýktar innilegrar afsökunar á framferði mínu síðastliðna 48 klukkustundir. Þetta hefur ekki alveg verið minn dagur og algjör óþarfi að láta það bitna á ykkur ágæta fólki. Ég skal leitast eftir að finna mitt fyrrum sjálf og finna básúnuna á nýjan leik. Þakka ég eindregið mönnum eins og Hakuchi fyrir athugasemdirnar og góð heilræði og umfram allt að sýna heilindi. Einnig ykkur hinum segi ég takk. Hrökk ég dálítið við þegar Glúmur að ég held vildi líkja mér við Tony C..... Ekki viljum við annað svoleiðis klúður.

Ég endurtek afsökunarbeiðni mína og þá sérstaklega til hennar Mosu frænka. Elsku Mosa mín, þetta var ljótt af mér. Afsakaðu mig.

Virðingafyllst

Leibbi Djazz

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 11/7/04 19:40

Batnandi englum er best að lifa. ‹Gefur dauðasveitunum skipun um að hætta við launmorð á Leibba›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tinni 11/7/04 19:55

Ég hef þegar beðið fyrir leynileg skilaboð til yfirstjórnar varðandi einstaklega leiðinlega innkomu Leibba að undanförnu.

Þrátt fyrir einstaklega hlýja strauma frá honum í minn garð, þá hefur karlremba hans og beinskeyttar svívirðingar í garð kvenna hér verið nær ófyrirgefanlegar.

"Svona gera menn ekki!"

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
voff 11/7/04 19:57

Ein af þessum klassísku: Ertu mikið fyrir hreinlæti?
(ef já) Gott, í staðinn fyrir forleik getur þú tekið til og skúrað hjá mér.

‹roðnar yfir að hafa upplýst um karlrembu sína›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mosa frænka 12/7/04 10:04

Leibbi Djazz mælti:

Ég endurtek afsökunarbeiðni mína og þá sérstaklega til hennar Mosu frænka. Elsku Mosa mín, þetta var ljótt af mér. Afsakaðu mig.

Fallegt af þér að biðjast afsökunar. Þér er fyrirgefið - vonandi líður þér betur.

Nú vitum við alla vega fyrir víst, að umtalaða línan dugir illa sem pikköpp. Hægt er að sækja vísindi í öllu.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mosa frænka 12/7/04 10:08

Heyrt á erlendum skemmtistað:

Flottir skór; viltu ríða?

Raunar að verða klisjukennd, þessi, eins og 'How do you like Iceland?'

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vamban 12/7/04 13:00

voff mælti:

...skúrað hjá mér?

Er ég sá eini sem fattar tvíræða merkinguna hér? Kannast einhver við engilsaxneska orðalagið "toss my salat"?

Vimbill Vamban - Landbúnaðarráðherra. Hirðstjóri og yfirsmakkari. Fjármálastjóri Hreintrúarflokksins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mata Hari 12/7/04 14:06

Hæ...stubbur.

GESTUR
 • Svara • Vitna í • 
Afbæjarmaður 13/7/04 15:43

Hæ......... grýla

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 13/7/04 16:21

Mér finnst hún svo sæt.

        1, 2, 3, ... 14, 15, 16  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: