Þetta er sérlega fallegt verk og færi einkar vel í setustofu suðurálmu konungshallarinnar.
Ég send ávísun, Bob; verð við milli 3 og 4 í dag, láttu senda það þá.
HVA... ? ! ?
Herra forseti, ef ég vissi ekki betur þá held ég að Bob sé hrifinn af þér.
Já eða amk vill vinna fyrir þig við reikninga til hergagnaframleiðslu.
en kannski er Bob bara svona listrænn í sér og sá eitthvað nýtt í þér sem listamenn hafa ekki tjáð áður... hvur veit.
Bob... hvaða hefuru um málið að segja????
Mér finnst þetta í allri einlægni falleg mynd, enda er forseti vor myndarlegur maður og fríður sýnum. Gaman væri að sjá fleiri með augum Bobs.
Ég vildi t.d. gjarnan fá slíka mynd af konungi mínum til að hafa á náttborðinu.
Goggnum líst afar vel á þessa mynd og leggur til að öll Baggalútía verði skreytt téðri mynd. Til hamingju, Bob.
Það er óneitanlega einhver Gestapó-þefur af myndinni en að skreyta alla Baggalútíu með henni er kannski aðeins of langt gengið. En að fá fleiri svona myndir og þá af fleirum í ríkisstjórn Baggalútíu líst oss vel á Ljómar upp
Þetta er glæsileg popplist. Ætli Bob sé stafræn endur'holdgun' Warholes?
Bob er greinilega góð Tölva sem er að senda skilaboð um eitthvað.
Kannski er verið að Klóna Vladimir ????
Ha ? Klóna oss ?
Ha ? Klóna oss ?
Ég legg hér með inn formlega pöntun að flennistórri mynd af Hakuchi konungi. Einnig óska ég eftir að fá slíka mynd þrykkta á koddaver, það mun gera mér aðskilnað okkar bærilegri.
Hver sá sem tekið getur að sér að mála smámyndir (í nisti) er beðinn að hafa samband við konungshjónin. Möguleiki er að einnig verði efnt til samkeppni um portrettmálverk og/eða freskur í fullri stærð, sem prýða eiga morgunverðarstofuna í austurvæng sumarhallarinnar annars vegar og svefnálmu og setustofu í vesturhluta vetrarhallarinnar hins vegar.
Áhugasamir sendir inn hugmyndir, meðmæli frá þekktum fagurkerum og sýnishorn af fyrri verkum.
Jú, þetta er mikil póstmóderníks snilld hjá Bob. Einmitt það sem vantaði hér á Baggalút, almennilegann listamann.
Meistaraverk! Áleitið meistaraverk.
Sannarlega óviðjafnanlega fallegt snilldarverk!
Og myndin er bara ansi góð líka.