Hann barðist við ellina, Brando
bústinn og löng´orðinn handó-
nýtur til ásta,
í neyð var það skásta
að loksins með sóma og sann dó.
Biblían brennur í hlöðum
bálið það dansar á blöðum
ritningin galinn
rétt eins og smalinn
held ég nú glyðrunum glöðum
Ég reyni að stuðla og ríma.
Römm er og flókin sú glíma.
Rímar þá Hússein
með réttu við Bússin?
Það rétt virðist hafirðu tíma.
Boltasparkið bráðum er
búið nú sem betur fer
ég græt og hamast
guðlasta og lamast
góðærið farið ég sver
Bob compute "beep"
BASIC shut down sleep
vírus mig plagar
vírana nagar
vesælt mitt móðurborð klíp
Kann ég ei vísunnar vanda
vanur ég mun hér þó standa
Ég geifla og gretti
gambrann svo setti
Barði svo bambus með panda
mín eina afsökun er ölvun, já ölvun
Hlégast hæfastann manna
hagyrðing svo dæmin sanna
rímur fram setja
ráðfastur geta
rökfastri andagyft anna
Rímnameistari ráðuneyti
og ráðherrastöðu nú þér veiti
bætir fræðin
brattur, ræðinn
braginn minn bætir að öllu leyti
Sigríður keyrði víst Saap ei
sýtti þó snótin það tap ei.
Það er ei pláss
fyrir þesskonar stáss,
hjá pæju sem býr hér í Papey.
Trúttum skal talað í síma
tafsandi viðutans víma
ég segi hátt
áttu þá bágt
andskotans Tal-frelsis glíma
Krabbamein í kollinn fæ
kolruglaður sí og æ
gemmsinn mig steikti
geðheilsu veikti
nú GSM hendi í sæ
Til andskotans farinn er „Frerinn“
Því forsætisráðherra hérinn
hann fékk sér einn sjúss
og fór heim til Bush
og fékk oss þar skráða í herinn.
Snilldarlega kveðið Þorsti minn.
Í orðastað Dabba í Hvíta húsinu:
Íslands er nú vörnin veik.
Viltu Bússi koma í sleik?
Njósnaflug búin
Komminn er flúinn
Lítið er fútt í byssunnar leik.
Mr. Texas Bússi svarar:
Dabbi krull, my good old friend.
We must defend our fatherland.
Sýndu nú þor.
Support the war.
Otherwise this is the end.
Sá bakið á Davíð í hálft sekúndubrot á CNN í fyrradag, þar var hann með Bush og Bush var að bulla eitthvað um alvöru málefni (af eintómum hálvitaskap að vanda).
Bullar Bush um málefni
Bússasonur vangefni
Dabbi á bágt
Dóri hlær hátt:
"þig pólitískt prostitude nefni"
Ég svolgraði eitraðan sveppinn
í sveiflu var dúndrað á Kleppinn
Vímus er laus
við ruglaðan haus
Mikið andskoti er maður heppinn
Ég hugsa til fagurra fjallanna
og finn hjá mér löngun til kallanna
og Dabba með nýrað
sem dável nú býr að
drattast ei lengur með gallanna.