Svampur Sveinsson. Dæsir Af hvurju hefi ég ekkert forræði yfir mínu eigin sjónvarpi?
Ó hvað ég gæfi mikið fyrir að fá að horfa á Svamp Sveinsson og að íþróttagerpið og allt hans hyski hyrfi af yfirborði jarðar!
Annars er ég að horfa á afskaplega kynþokkafullan mann í sjónvarpinu núna.
Eigi minnumst vér þess, að vera á dagskrá nokkurrar sjónvarpsstöðvar í kvöld.
Glottir eins og fífl.
Ákveður að skemma ekki fyrir Fergesja
Enda er ég að horfa á sjónvarpsþátt á flakkaranum.
Afmælistónleikur Valgeir Guðjónssonar. Þar er nú flutt lagið Stella í orlofi.
Það er allt of mikið verk að standa upp og kveikja á tækinu til að komast að því hvað er í því.
Stórgóður þáttur um sögu þungarokks.
Nú er einhver ammrísk löggudramatík. Vér erum um það heldur áhugasnauðir.
Höllin. Á eftir Höllinni verður síðan Höllin.
Hvað var þá á undan Höllinni?
Einhver danskur sjónvarpsþáttur með íslenskum texta.
Kynþokkafulli maðurinn er kominn aftur á skjáinn.
Akkúrat núna er það upprifjun á helztu tilþrifum skussanna í þriðju þeild ensku knattspyrnunnar. Sorglegt að þessi skítalið séu betri en okkar eigin landslið.
Nau nau nau, haldiði að það sé ekki verið að sýna bakbrotsfellið þeirra Hvæsa og Texa á sjálfu ríkissjónvarpinu! Eins gott að skipta strax yfir á diskinn til að fá ekki martraðir í nótt.
Áreiðanlega einhver einskis virður, ómerkilegur og hundleiðinlegur fjári.
Gömul uppþornuð herfa frá Mexíkó að spjalla við krullhærðann ísturbelg um bók sem hún reit