Einhver íslensk mynd um brúðkaup sem er álíka skemmtileg og að láta rífa úr sér hálskirtlanna.
Hale og Pace á DVD
Nenni ekki að horfa á eitthvað truntudrama
Í sjónvarpinu er óskaplega leiðinlegur þáttur um konu sem getur talað við drauga. Skánar reyndar til muna þegar lækkað er niður í sjónvarpinu og Tom Waits settur á fóninn.
Galatasary og Liverpool að spila knattspyrnu. Afar misheppnuð sölusýning hjá Liverpool. Bezti maður leiksins var seldur frá Liverpool fyrir mörgum árum. Hnussar af miklum móð
Matreiðsluþáttinn Grillað
Hólí fökk; frúin er að horfa á upprifjun á löngu gleymdum tónlistarmönnum frá tíunda áratugnum. Það er einhvur Kúlíó að rappa um paradís gangsteranna akkúrat núna. Úff.
DR1: Heilsdagsútsending frá 40 ára krýningarhátíð Möggu Jong Un í Kaupmannahöfn.
Einhver íslensk mynd um brúðkaup sem er álíka skemmtileg og að láta rífa úr sér hálskirtlanna.
Úff já ég hef séð hana - samúðarkveðjur til þín Grágrímur. Var búin að þurrka hana úr minninu fram að þessari áminningu. Þvílík hörmung. Hér er hins vegar könnuðurinn Dóra ásamt Klossa að skemmta heimilisfólki.
Vér efumst um, að í sjónvarpinu sé nokkur dagskrá að viti, fremur en endranær.
Samantekt daxins úr Afríkukeppninni í knattspyrnu. Aðallega hefi ég tekið eftir... ööö.. Hóstar örlítið ...óvestrænni hártízku hjá búskmönnunum.
Áreiðanlega handknattleikur.
Svampur Sveinsson. Dæsir Af hvurju hefi ég ekkert forræði yfir mínu eigin sjónvarpi?
Tilraunir með allskyns eiturlyf og hvernig viðbrögð fólks eru við ýmsar aðstæður.
Fær sjer í eina feita