Verið velkomin á hinn nýja vísindavef, Nývísindavefinn.
Hér er hægt að varpa fram hverskonar spurningum er varða vísindi.
Sérfróðir Baggar geta svo svarað að vild.
Glúmur Angan
Hvernig má umbreyta lífsorku yfir í fast efni og hver er formúlan fyrir slíkri umbreytingu?
Er mögulegt að gera kóbaltbættan Admiral áfengari og hvernig væri slíkt framkvæmt?
Hvernig má umbreyta lífsorku yfir í fast efni og hver er formúlan fyrir slíkri umbreytingu?
Afhverju reynirðu ekki frekar að gera það að fljótandi efni. Þá getum þú yfirgnæft allt. Eins og The Blob
Hvernig má umbreyta lífsorku yfir í fast efni og hver er formúlan fyrir slíkri umbreytingu?
Lífsorkan er viðsjárvert efni og vandmeðfarið. Þegar maður umgengst lífsorku er mikilvægast að vera meðvitaður um að varðveita hana og gæta þess að glupra henni eigi úr höndum sér.
Lífsorkan er í gasfasa við líkamshita, suðumark hennar er við 31°c og frostmark hennar er við -80°c.
Til að umbreyta lífsorku yfir í fast efni þarf fyrst að fanga lífsorku einstaklings. Gott er að brúka flösku til verksins og virðast tómar áfengisflöskur sérlega vel til þess fallnar. Reyndar svo vel til þess fallnar að margir hafa óafvitandi fangað sína eigin lífsorku á þann hátt.
Eftir að lífsorkan hefur verið fönguð þarf að skilja hana frá öðru innihaldi flöskunnar. Best er þá að kæla flöskuna niðurfyrir 20 gráður, gott er að láta kalt vatn renna á hana í nokkurn tíma. þegar það er búið skal vökvanum sem búinn er að þéttast komið fyrir í vatnsþéttu íláti með stillanlegu rúmmáli, sprauta hentar vel til þess verks. Sprautunni ásamt innihaldinu, fljótandi lífsorkunni, er síðan komið fyrir í öflugu frystihólfi eða dýft í fljótandi nitur. þegar 80° frosti er náð kristallast lífsorkan, dregst töluvert saman og er þá komin á fast form.
Er mögulegt að gera kóbaltbættan Admiral áfengari og hvernig væri slíkt framkvæmt?
Ég mæli með því að frysta hann að -110°c og sía þá burt allt efni sem orðið er í föstum fasa.
Einnig gætirðu reynt að eyma ethanólið úr drukknum og þétta það eigi aftur, á þann hátt gætirðu geymt vínandann í blöðru við mátulegt hitastig (80-90°c) og andað því að þér þegar þér finnst þörf.

Þarna kemur ekki fram hvernig þú ætlar að nýta kóbalt Glúmur. Helst dettur mér í hug að mynda hexadentate kóbaltkomplex í NH3/NH4+ stuðpúða. Á hverja komplex sameind bindast þá 6 mólikúl af etanóli. Það sem að öllum líkindum gerist hins vegar er að komplexarnir bindast hver öðrum og falla út sem kristallar eftir viðeigandi meðferð (sem ég man ekki í augnablikinu). Umfram vökvi er síaður frá kristöllunum og hent. Kristallarnir eru nú rammáfengir og líklega mætti smjatta á þeim um stund til þess að verða var við áhrif þar að lútandi. Kóbaltið sjálft skal hins vegar ekki fara í meltingarveginn af því að það er ekki gott.
Nú líst mér á þig! Tekur Hóras af byrjendagelgjuvarúðarlistanum
Kóbaltið sjálft skal hins vegar ekki fara í meltingarveginn af því að það er ekki gott.
Hvurslags rugl og vitleysa? Maðurinn er greinilega ekki búin að kynna sér stórfenglegu kóbaltrannsóknir sem hér hafa farið fram.
Vinsamlegast fræddu mig Vamban
Hér má finna, ef vel er leitað, ýmsa þræði um kóbalt. Vér mælum með að þér kynnið yður þessi skrif fyrst og spyrjið svo um eiginleka kóbalts.
Er lífsorka á borð við þá er Blástakkur er að spyrja um hættuleg og/eða nýtanleg í hernaðarskyni ?
Skrifar málvísindaforrit með raddhermisstuðningi fyrir Bob...
Er lífsorka á borð við þá er Blástakkur er að spyrja um hættuleg og/eða nýtanleg í hernaðarskyni ?
Ó já, minn kæri Vladimir. Það er hún svo sannarlega! Ljómar upp
Er hægt að bæta kóbalti inn í efnaformúlu ethanóls? Myndi efnaformúla hins nýja vínanda vera einhverneginn svona: CH3(CH2)(CoH2)OH? Ef svo væri leggur Goggurinn til að kóbaltbæta allar vínandabyrgðir Baggalútíu. Ef það hefur þegar verið gert, Þá skal það vera gert aftur.