Nenni Níski
Ég leyfi mér að efast um að hann sé frægur.
Það er BANNAÐ að nefna nöfn sem enda á ,,ð"!
Nenni Níski
Ég leyfi mér að efast um að hann sé frægur.
Ég leyfi mér að efast um að þú vitir nokkuð um það. Og já, hann er víst frægur.
Það er BANNAÐ að nefna nöfn sem enda á ,,ð"!
Ég skora á þig að finna reglu sem bannar að nöfn sem enda á „ð“ séu notuð.
Reglurnar fylgja hér :
Reglurnar eru einfaldar.
1. Nafn þess einstaklings sem þið komið með verður að byrja á síðasta stafi nafn þess sem á undan var. Dæmi: Ronald Regan = Naomi Campell
2. Ekki má nefna sömu manneskju nema með allavega tveggja síðna millibili.
3. Sé þess óskað af meðspilurum verður viðkomandi að færa rök fyrir því hvers vegna sú manneskja sem hann nefndi er í raun fræg. Takist það ekki þarf viðkomandi spilari að sitja hjá sem nemur tíu innleggjum.
4. Leyfilegt er að nefna teiknimyndafígúrur, guði, stjórnmálamenn, sögupersónur og annað upphugsað og/eða ímyndað fólk.
Afsakið framhleypnina.
-
Tjah, ég hef nú grun um að Vladimir hafi lausn á vandamálinu... en ef svo er ekki... þá... jæja, máske hef ég klárað leikinn.
Vonar að enginn sé sár
-
Ekkert mál að halda áfram, þó Vlad sé ekki við:
Ðong Thap
(fótboltakappi í Vietnam)
(Hér áður fyrr tíðkaðist að "skanderast". Það er nokkurnvegin sama og að "kveðast á" en frábrugðið að því leiti að ef vísa endaði á "Ð" þá átti að nota fyrsta staf í síðasta orði. T.d. ef vísa endaði á orðinu "blaðið" þá átti næsta vísa að byrja á bókstafnum "B".
Hægt væri að bregða þessari reglu fyrir sig núna og byrja næsta orð á sama staf og Ð-orið byrjaði á eða nota næstaftasta staf.
Þetta er náttúrlega í höndum þráðarstjórnanda.)