— GESTAPÓ —
Klámvæðing
» Gestapó   » Kveðist á
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 22/8/03 17:27

Hvað hefur nú komið yfir Enter? Það hefur mátt skilja á skrifum hans að hann hafi að mestu verið einn að störfum á ritstjórninni. Ég veit ekki hvort það stafar af of miklu álagi að hann skuli nú hvetja okkur gesti að senda inn blautlegan neðanmittis kveðskap fyrir helgina.
Ekki trúi ég að Myglar hafi samþykkt þessa áskorun.
Ég hvet gesti til að ganga ekki of langt í klámsendingum svo maður þurfi nú ekki að banna börnum að lesa Baggalút. ‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 23/8/03 18:10

Klámið hér er komið það
kannske við oss loða
bannað verður börnum að
baggalútinn skoða

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Barbapabbi 24/8/03 18:36

Hæfir hvert hvurju sinni og nú er sunnudagur

Himnasmalans heyrist bragur
herrans talið loftið bar
Nú er svalur sunnudagur
sækja skal í kirkjurnar

í höllu drottins hljómar fagur
hann sem vottar okkar far
oft þó dotta ekki ragur
einnig brottna reglur þar

andlegt fis á hlýddi hagur
hlýðinn glisi þarna var
um holdsupprisið heyrði magur
hvernig slys varð okkar svar

Dr.Barbapabbi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Bölverkur 29/5/05 14:08

Dr. Barbapabbi fær sérstakt lof, en en er tekinn að yrkja vísu dagsins.

En, hér er klámvísa eftir mig:

Yrki ég hér aðeins klám,
í því stefni að meti,
því að maður dregur dám
af dónum hér á Neti.

Gjaldkeri Fjárausturbæjarsamtakanna og meðlimur í Hagyrðingafjélagi Baggalútíu.
LOKAÐ
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: