Co 27
Sögu Kóbalts má rekja allt aftur til fornmenninga egypta og mesópótamíumanna, en þau menningarsamfélög notuðust við steindir sem innhéldu það til þess að gera gler blátt að lit. Keramíkfornleifar frá því allt að 3.000 f.kr. hafa að geyma Kóbalt.
Kóbalt er mjög óathyglisvert í útliti, sem gefur engann veginn til kynna alla þá fjölmörgu notkunareiginleika þess. Það er gráleitt, silfrað og minnir einna helst á blý. Kóbalt þekur rétt undir 0.001% af yfirborði jarðar.
Ritað á formi danska eðlisfræðingsins Niels Bohrs lítur Kóbalt svona út:
- Grunnupplýsingar -
Sætistala: 27
Eðlismassi: 8,9 g/cm3
Fasi: Fastur
Atómassi:58.933
Bræðslustig: 1768 Kelvin(1495° C)
Suðustig: 3200 Kelvin(2870° C)
Rafeindahýsing: [ Ar ] 3d7 4s2
Ég vona að þið kunnið að meta þessa litlu samantekt mína.
Takk fyrir.
Alls ekki nóg. Hvað með sprengimassa. Og svo væri gott að vita hvernig hægt sé að drekka efni sem er með bræðslustig 2870° C
Alls ekki nóg. Hvað með sprengimassa. Og svo væri gott að vita hvernig hægt sé að drekka efni sem er með bræðslustig 2870° C
Notkunarmöguleikar í hernaði voru alls ekki efni ritgerðarinnar. Það er heldur ekki ætlað til drykkju, heldur til inntöku í töfluformi og þá í mjög MJÖG litlum skömmtum
Fæstir vita að Kóbalt er í raun hluti af B12 vítamín sameindinni og má finna í flestum plöntum og því einnig grænmeti.
Það eina sem myndi hafast af því að drekka soðið kóbalt væri 3. stigs bruni og ef maður myndi lifa það af nógu lengi til þess að líkaminn gæti tekið það inn í sig, offjölgun á rauðum blóðkornum auk skaða á hjartavöðvum og skjaldkirtli.
Og auk þess skaða á mýelinslíðri sem er utan um flestar taugafrumur. Kópaltmín myndar varnarvegg utan um margar taugafrumur er kallast #mýalín"
Fæstir vita að Kóbalt er í raun hluti af B12 vítamín sameindinni og má finna í flestum plöntum og því einnig grænmeti.
Ég vil nota tækifærið og skýra mál mitt ögn þar sem ég var kannski einum of gagnorður þarna.
B12 vítamín finnst sem sagt ekki í plöntum heldur verður líkaminn að fá það úr kjöti og því getur B12 vítamínsskortur átt sér stað í grænmetisætum.
En af Kóbalti er hinsvegar gnótt í grænmeti, a.m.k. miðað við aðrar uppsprettur þess.
Kóbalt má finna líka, eins og áður var sagt, í mörgum steindum.
Stendur upp og klappar Bravó, bravó!
Hátt Kóbaltshlutfall í lofti getur valdið lungnatengdum sjúkdómum s.s. Astma þótt að það sé mönnum í raun lífsnauðsynlegt í mjög litlum skömmtum til þess að búa til rauð blóðkorn.
Haha, þetta er augljóslega bull!
Haha, þetta er augljóslega bull!
Hvað þykist þú eiginlega vita!?! Þú ert ekki einu sinni kominn með M.S.-inn.
Kjánaprik.
Kóbalt finnst aldrei hreint í náttúrunni, heldur í sambandi við önnur efni. Kóbalt er segulmagnað. Blanda þess og annarra málma er notuð í svokallaða sísegla. Blá kóbaltsölt hafa verið notuð sem litarefni í postulín. Geislavirkar samsætur kóbalts hafar verið notaðar við krabbameinslækningar.
Kóbalt finnst aldrei hreint í náttúrunni, heldur í sambandi við önnur efni. Kóbalt er segulmagnað. Blanda þess og annarra málma er notuð í svokallaða sísegla. Blá kóbaltsölt hafa verið notuð sem litarefni í postulín. Geislavirkar samsætur kóbalts hafar verið notaðar við krabbameinslækningar.
http://www.namsgagnastofnun.is/lotukerfi/Co.htm
Þú gleymdir að nota gæsalappir.
Spurning um hvort gleymsku hafi verið að ræða, eða bara hvort Goggurinn hafi ætlað að slá um sig með þessari vitneskju með því að gera hana sína eigin.
Já, eða sé kannski annar ritstjóra DV?
Í anda þeirrar umræðu sem hefur þróast þá vil ég nota tækifærið og birta þær heimildir sem ég notaði:
http://www.kn.pacbell.com/wired/fil/pages/listcobaltsa.html
http://www.zestrsa.co.za/products/info/cobalt-info.htm
http://www.efunda.com/materials/elements/element_info.cfm?Element_ID=Co
http://www.vanderkroft.net/elements/elem/co.html
http://www.namsgagnastofnun.is/lotukerfi/Co.htm
Þegar Rauðbjörn segir svona er hann náttúrulega að tala um hinn venjulega mann og viðbrögð hans við kóbalti.
Kóbalt hefur ekki sömu áhrif á okkur eftir "breytingarnar"
Leyndarmál mitt er það að helstu lífefnum hefur verið skipt út fyrir kóbaltbaseruð pródúkt.... Þetta var líka aðalástæðan fyrir að kóbalthjálmurinn minn gamli var með sjálfstæða öndunarvél.
En, ég skil ekki hvers vegna Kóbaltbætti Admiralinn minn er ekki blár. Hvað veldur?