Það rann skyndilega upp fyrir oss að ríkisstjórn Baggalútíu skortir með öllu smellið slagorð. Er þráður þessi stofnaður til að vera vettvangur tillagna um slíkt. Ríðum vér hér á vaðið og leggjum til að það verði haft nokkuð í anda Loðvíks 14.:
"Ríkið, það erum vér"
Hmmmmm? Hugsar málið og setur upp svip
"Kóbaltbætt að sjálfsögðu"
"Förum í Ríkið"
"Baggalútía - Þar sem skonsan er smurð"
"Ríkið Ræður Ríkjum"
"Baggalútía uber alles"
"Kóbalt uber alles"
"Baggalútía - við hjálpum þér að láta'ða ske"
"Kóbalt lengir lífið"
"Baggalútía - ekki Færeyjar"
Mínar tillögur:
"Baggalútíu allt!"
"Frelsi til að drottna"
"Baggalútía - þér fyrir bestu"
"Q.E.D."
Það er bara eitt sem kemur til greina:
,,Allir menn eru jafnir, en sumir eru jafnari en aðrir."
Hakuchi getur víst ekki fundið uppá neinu sem ekki hefur verið notað áður. Synd, hann sem virtist lofa góðu Gefur frá sér stunu Hakuchi, teygðu nú inn í þína innstu sálar kima og finndu það sem hjarta þitt þráir!
Og hver, minn vin, í sjálfdauðri síldarverksmiðju ert þú?
svona svona, Hakuchi, hann lyktar ekki svo illa þegar hann tannburstar sig aðeins.
hmm... þefar af Eðallambi og fellur í yfirlið
"Baggalútópía!"
"elskaðu okkur eða við sendum Frelsishetjuna á þig, fulla.
Frelsisskurkurinn hræðir mig ekki læknir. Og maður að þinni mennt ætti að vita að útópíur hafa aldrei gengið upp, eða ertu kannski bara doktor að eigin nafnagift? Dundar sér við pælingar um líkamsskurði
Hákon hildi hafin er...gaur rakaðu þig
Þessu var ekki beint að þér en hvað varðar útópíurnar þá voru öngvar þeirra Baggalútópíur.
Afsakið læknir, Baggalútópía hljómar vel, en það hafa þær allar gert
Ég ætla ekki að svara þessu eðallambi svokallaða í nánustu framtíð.
Ég lýsi því hérmeð yfir að eðallamb er óvinur Ríkisstjórnar Baggalútíu.
Ó, þar með fjölgar stelpum í þeim hópi. En það var svo sem ekki við neinu öðru að búast, svona illa rakarður maður mætti búast við slíku.