— GESTAPÓ —
Baggalútíu blast - TILMÆLI
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
     1, 2  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
salvador 30/8/03 10:06

!?! ‹Springur úr hlátri ›

Salvador; Löggiltur SKRÓPAGEMLINGSMEISTARI gestapó
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð
Tenant 5/9/03 13:36

‹Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Leibbi Djass 25/3/04 00:43

‹Brestur í óstöðvandi grát›

Nú renna ekki öll vötn til Dýrafjarðar! Nú rennur allur djús til Pakistan!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 23/4/04 11:02

‹Býður Frelsishetjunni smyglaðan Skota til kaups. Pils fylgir.›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 23/4/04 15:34

‹leiðbeinir tryllu fullri af kössum sem á er ritað "brothætt" inn í smábátahöfnina›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Diotallevi 23/4/04 16:23

Gaman að sjá athafnalífið í blússandi gangi.

‹Lítur haukfránum augum á grunsamlega trillu›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mikill Hákon 23/4/04 16:30

‹skellir kössunum upp í flutningabíl og flýr af vettvangi›

Mikill Hákon • Keisari Baggalútíu • Eigandi sálar Vambans • Sendiherra Baggalútíu í Afríku
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 23/4/04 16:32

Vantar ekki skargpreinda manneskju í embætti tollstjóra Baggalútíu? Er slíkt embætti til, Vladimir?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Diotallevi 23/4/04 16:34

Mér sýnist altént ekki veita af nokkrum fílefldum tollvörðum.

‹Var þarna keisarinn á ferð?›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Þetta var bara lítil sending af leikfangaböngsum. Ekkert til að hafa áhyggjur af. Farið að sofa, börnin góð.

‹sussar blíðlega›

Sir Bjargmundur Svarfdal frá Keppum KBE • Nefndarmálaráðherra og Utanríkismálaráðherra Baggalútíu • Stórriddari Baggalútíu
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Sverfill Bergmann 24/4/04 13:19

‹Svæfir nokkra þverhausa með Vulcan-gripinu...›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 24/4/04 15:15

Júlía mælti:

Vantar ekki skargpreinda manneskju í embætti tollstjóra Baggalútíu? Er slíkt embætti til, Vladimir?

Nei, slíkt embætti er eigi til en nú er þér nefnið það sjáum vér að brýn þörf er á slíku embætti því oss vantar meiri pening til að halda áfram veislunni í tilefni af 2000. innlegginu, einhver tekur til með reglulegu millibili þannig að vér vorum að ná þessum merka áfanga í 3. sinn rétt í þessu. Tollar eru afar góð fjármögnunarleið. Einhver sjálfboðaliði í embættið - Júlía kannski ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 24/4/04 15:47

Ég mæli með Diotallevi. Það kemst ekkert fram hjá honum og það er hægt að múta honum.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 24/4/04 16:41

Hakuchi mælti:

Ég mæli með Diotallevi. Það kemst ekkert fram hjá honum og það er hægt að múta honum.

Greinilega gæðamaður...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Diotallevi 25/4/04 16:44

Þar að auki fer ég alloft með rangt mál á sannfærandi hátt.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 25/4/04 16:50

Betri mannkostir finnast ekki í fari Tollstjóra. Þú ert ráðinn.

Þá er bara að hafa uppi á Vladimír og láta hann uppfæra listann.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Diotallevi 25/4/04 16:55

Er þá hægt að kalla þetta konunglega embættisfærslu?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 25/4/04 17:14

Hiklaust.

‹Dregur fram hið konunglega sverð og lemur Diotallevi í hausinn með því›

Ég slæ þig hér með til Konuglegs Tollstjóraembættis Baggalútíska Heimsveldisins!

Þú færð innsiglað embættisbréf í pósti.

     1, 2  
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: